Betri Stofan kynnir: Einstakt hús á einstökum stað á gróðurmiklu svæði við Varmá í landi Reykja í Mosfellsbæ. Húsið telur skv. HMS 186,8 fm en ínni í þeirri tölu er ekki um 70 fm gróðurskáli.
Gengið er í gegnum stóran garðskála þar sem eru ræktaðar matjurtir og rósir. Hiti er í gólfi skálans (affallslagnir). Hægt er að opna alveg út í garðinn með rennihurðum. Þegar inn í aðalbygginguna er komið tekur við hugguleg forstofa með gestasnyrtingu með nýju WC, vaski og blöndunartækjum og rúmgóður gangur sem leiðir í allar vistarverur hússins. Það eru tvær bjartar stofur og sjónvarpshol með tvöföldum arni, annar hluti snýr inn í garðskálann en hinn í stofu. Loftið er panilklætt með viðarbitum og aukinni lofthæð í stofum og sjónvarpsholi. Fallegt nýtt eldhúsið er opið inn í stofuna. Í eldhúsi er ný innrétting og ný innbyggð tæki, uppþvottavél, ísskápur og Smeg gaseldavél. Nýjar raf- og vatnslagnir. Svefnherbergin eru þrjú og frá hjónaherberginu er innangengt inn á stórt flísalagt baðherbergi með niðurfelldu baðkari og sturtu. Nýtt WC og handklæðaofn. Þvottahús er nýstandsett og þaðan er hurð út í garðinn. Úr þvottahúsinu er niðurfellanlegur stigi upp á stórt geymsluloft sem er yfir svefnherbergjaálmunni. Gólfefni :Gegnheilt eikarparket er á öllu húsinu, flísar á böðum. Þrefalt gler í gólfsíðu gluggunum (hjónaherbergi, eldhúsi og stofu). Við fremri enda garðskálans liggur lítið hús þar sem innréttað hefur verið gott svefnherbergi með gólfhita og lagðar lagnir fyrir baðherbergi. Hluti hússins er geymsla.
Ásbyrgi er í miðri náttúruparadís en um leið er stutt í alla þjónustu. Þar er göngustígur meðfram Varmá sem rennur meðfram húsinu og sést út um svefnherbergis-, stofu- og eldhúsgluggana. Fallegar göngu- og hlaupaleiðir, fjöllin í kring og fleiri útivistarsvæði: Hafravatn, Hádegisfell, Úlfarsfell, Reykjafell og Helgafell allt í göngufjarlægð sem og Skammidalur, einstakt svæði fyrir útivistarfólk. Afskaplega rólegt og fjölskylduvænt svæði. Húsið er innst í botnlanga sem er með merktum einkavegi og því engin bílaumferð. Gott bílaplan fyrir 2-3 bíla og nægt pláss fyrir framan hús fyrir fleiri. Lóðin er eignalóð, tæpir 1100 fm og möguleiki á að byggja bílskúr.
Viðhald og endurbætur 2024: - Nýtt eldhús, innrétting, tæki og lagnir. - Ný innrétting í þvottahúsi og stigi settur upp á geymsluloft. - Baðherbergi og gestasalerni endurbætt. - Ný hitaveitugrind og varmadæla. · Ný rafmagnstafla, skipt um alla tengla og rofa. · Tengi fyrir rafbílahleðslu. · Allir steyptir veggir í húsinu heilspartlaðir auk loftsins í hjónaherbergi· · Danskt gegnheilt eikarparket (á öllum rýmum nema salerni, þvottahúsi og nýja herbergi) pússað upp og olíuborið. - Nýir gluggar í litla húsi. - Hiti í gólfi og ný hitaveitugrind í litla húsi. - Þakjárn þarfnast skoðunar og gluggi í þvottahúsi. Allar nánari upplýsingar gefa:: Þórhallur Biering löggiltur fasteignasali í síma 896-8232 eða thorhallur@betristofan.is eða Gunnar S. Jónsson löggiltur fasteignasali í síma 899-5856 eða gunnar@betristofan.is.

Dagsetning
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
Nothæfur samningur
12/08/2024
113.200.000 kr.
142.000.000 kr.
186.8 m2
760.171 kr.
Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.