Laugardagur 19. september
Fasteignaleitin
Skráð 19. sept. 2026

Birkiteigur 33

RaðhúsSuðurnes/Reykjanesbær-230
179.3 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
79.900.000 kr.
Fermetraverð
445.622 kr./m2
Fasteignamat
91.750.000 kr.
Brunabótamat
99.650.000 kr.
Mynd af Halla Vilbergsdóttir
Halla Vilbergsdóttir
löggiltur fasteignasali
Byggt 1976
Garður
Pallur
Bílskúr
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2087125
Landnúmer
126659
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta 2015
Þak
Upprunanlegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina Birkiteigur 33, 230 Reykjanesbær.
Nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 208-7125 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. 

Um er að ræða rúmgott og vel skipulagt 179,3 fm fimm herbergja raðhús á einni hæð, þar af 38,1 fm upphitaður bílskúr. Eignin býður upp á gott fjölskylduskipulag með fjórum svefnherbergjum, rúmgóðri stofu og borðstofu, sjónvarpsholi, tveimur baðherbergjum, góðu eldhúsi og þvottahúsi.
Úr stofu er gengið út á afgirta verönd og gróna baklóð sem skapar notalegt og skjólgott útisvæði.
Garðurinn við Birkiteig 33 hlaut viðurkenningu Reykjanesbæjar árið 2014 fyrir góða hirðu og fallegt yfirbragð.

Eignin er vel staðsett í rótgrónu og fjölskylduvænu hverfi í Keflavík þar sem stutt er í leik- og grunnskóla ásamt helstu verslun og þjónustu.

Nánari upplýsingar veita:
Halla Vilbergsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 772-7930, tölvupóstur halla@allt.is.
Elín Frímannsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 867-4885. tölvupóstur elin@allt.is


*** 179,3 fm fimm herbergja raðhús á einni hæð.
*** Þar af 38,1 fm upphitaður bílskúr.
*** Fjögur svefnherbergi.
*** Tvö baðherbergi.
*** Rúmgóð stofa og borðstofa.
*** Rúmgott sjónvarpshol.
*** Afgirt verönd og falleg, gróin baklóð.
*** Steypt bílaplan.
*** Garðurinn hlaut viðurkenningu Reykjanesbæjar árið 2014.
*** Fjölskylduvæn staðsetning – stutt í skóla og helstu þjónustu.


Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Flísar á gólfi.
Gestasalerni: Flísar á gólfi.
Forstofuherbergi: Gott svefnherbergi með parketi á gólfi.
Sjónvarpshol: Rúmgott sjónvarpshol með parketi á gólfi sem nýtist vel sem auka setustofa og fjölskyldurými.
Eldhús: Parket á gólfi og viðarinnrétting með góðu skápa- og vinnuplássi. Góður borðkrókur er í eldhúsi.
Stofa og borðstofa: Björt og rúmgóð stofa og borðstofa með parketi á gólfi. Úr stofu er útgengt á afgirta verönd og þaðan áfram út í bakgarð.
Herbergisgangur: Parket á gólfi.
Svefnherbergi: Svefnherbergin eru fjögur talsins og eru þau með parketi á gólfum. Rúmgóðir fataskápar eru í hjónaherbergi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum að hluta. Viðarinnrétting, baðkar og sér sturta.
Þvottahús: Þvottahús er inn af eldhúsi með flísum á gólfi. Úr þvottahúsi er útgengt á bílaplan.
Bílskúr: Bílskúrinn er 38,1 fm og upphitaður. Útgönguhurðir eru bæði að framan og aftan sem eykur notagildi rýmisins.
Bílaplan: Steypt bílaplan er fyrir framan húsið.

Lóð og verönd: Á baklóð er afgirt verönd með skjólveggjum ásamt fallegum og grónum garði sem skapar notalegt útisvæði. Garðurinn við Birkiteig 33 hlaut viðurkenningu Reykjanesbæjar árið 2014 fyrir góða hirðu og fallegt yfirbragð.

Staðsetning:

Birkiteigur 33 er vel staðsett í rótgrónu og fjölskylduvænu hverfi í Keflavík. Stutt er í leik- og grunnskóla ásamt íþrótta- og tómstundastarfi og helstu verslun og þjónusta Reykjanesbæjar er í þægilegri fjarlægð.


Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1976
38.1 m2
Fasteignanúmer
2087125
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
15.400.000 kr.

Myndir (38)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Aðalstræti 16
Opið hús:22. sept. kl 16:30-17:00
Skoða eignina Aðalstræti 16
Aðalstræti 16
600 Akureyri
173.4 m2
Fjölbýlishús
724
461 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Tjarnabakki 14 (204)
Bílskúr
Efsta hæð
Tjarnabakki 14 (204)
260 Reykjanesbær
107 m2
Fjölbýlishús
211
541 þ.kr./m2
57.900.000 kr.
Skoða eignina Trönudalur 1
Efsta hæð
Opið hús:22. sept. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Trönudalur 1
Trönudalur 1
260 Reykjanesbær
90.4 m2
Fjölbýlishús
313
663 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Norðurgata 45 efri hæð
Bílskúr
Efsta hæð
Norðurgata 45 efri hæð
600 Akureyri
188.4 m2
Fjölbýlishús
413
398 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin