Böðvar Sigurbjörnsson og Borg fasteignasala kynna: Grenigrund 37, 300 Akranes – Vel skipulagt 5 - 6 herbergja 165 m2 einbýlishús á einni hæð með bílskúr, í eftirsóttu hverfi í höfuðstað Vesturlands - Húsið hefur verið talsvert endurnýjað og stendur á stórri og gróinni 882 m2 lóð. Skipulag: Anddyri, gestasalerni, eldhús, þvottahús/geymsla, borðstofa, stofa, gangur, baðherbergi, 3 svefnherbergi, bílskúr.
Nánar lýsing: Anddyri: Komið er inn í anddyri með flísum á gólfi, hiti í gólfi.
Gestasalerni: Flísar á gólfi, salerni, handlaug og gluggi.
Eldhús: Flísar á gólfi, gólfhiti. Innrétting með skápum ofan og neðan borðplötu, gott borðpláss og góð vinnuaðstaða. Helluborð í borðplötu með viftu fyrir ofan, tveir ofnar í vinnuhæð. Innbyggð uppþvottavél og borðkrókur.
Þvottahús/geymsla: Inn af eldhúsi, flísar á gólfi og útgengi út í garð.
Borðstofa/stofa: Parket á gólfi, gólfhiti. Stór og opin borðstofa og stofa með fallegri gluggasettningu og útgengi út á pall.
Baðherbergi: Flísalagt hólf í gólf með vönduðum flísum. Stór "walk in" sturta með svörtum innbyggðum blöndunartækjum og skyggðu sturtugleri. Upphengt salerni með innbyggðum kassa, innrétting fyrir neðan handlaug og upphengdur skápur á vegg. Spegill með lýsingu og handklæðaofn, gluggi og hiti í gólfi.
Herbergi 1: Rúmgott hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Herbergi 2: Stórt barnaherbergi með parketi á gólfi, var áður tvö herbergi og einfallt að breyta aftur í fyrra horf.
Herbergi 3: Með parketi á gólfi.
Bílskúr: Sérstæður bílskúr 29 m
2, einangraður með hita og rafmagni, rafhleðslustöð.
Annað: Um er að ræða flotta fjölskyldueign á vinsælum stað á Akranesi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttasvæði og alla helstu þjónustu. Yfirlit yfir endurbætur: Rafmagnstafla endurnýjuð 2019 - Bárujárn og pappi endurnýjað á húsi og bílskúr 2020 - Eldhús endurnýjað 2021- Gluggar á austur hlið endurnýjaðir 2021 - 2025 - baðherbergi endurnýjað - gólfefni endurnýjuð - gólfhiti lagður í alrými, nýjar innihurðar, nýir tenglar og ljósrofar að hluta.
Nánari upplýsingar veitir Böðvar Sigurbjörnsson, lögfræðingur M.L. og lgf., í síma 660-4777 eða bodvar@fastborg.isSjá einnig:fastborg.is/Smelltu hér til að fylgjast með mér á FacebookSmelltu hér til að fylgja mér á InstagramForsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.