Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Kaupstaður fasteignasala ehf. kynnir fallega og bjarta 4ja herbergja 106fm íbúð á jarðhæð við Skólabraut 13 á frábærum stað í innri Njarðvík-Reykjanesbæ í göngufæri við leik og grunnskóla. Fallegt gróið hverfi og frábært útsýni.
Eignin hefur sérinngang og skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, þvottahús og geymslu.
Forstofa: Parket á gólfi, fataskápur og skúffueining með spegli.
Stofan: Opin og björt með stórum gluggum, parket á gólfi. Útgengt út á sólpall.
Eldhúsið: Er í opnu rými við stofu. Hvít háglans innrétting með innbyggðum ísskáp, sem fylgir eigninni ásamt innbyggðri uppþvottavél. Fallegar flísar eru á milli efri og neðri skápa og svört granít borðplata er í eldhúsinu ásamt eyju með skúffum.
Hjónaherbergi: Góður fataskápur, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: Fataskápur, parket á gólfi.
Baðherbergið: Snyrtilegt baðherbergi, flísar á gólfi og veggjum, upphengt salerni, baðkar með sturtu, handklæðaofn.
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi og innréttingu.
Geymsla innan íbúðar: Gott skápapláss, flísar á gólfi.
Hellulagður pallur: Gengið út úr eldhúsi/stofu. Hlið opnast út í garð.
Tvær sameiginlegar geymslur fylgja íbúðinni, önnur á jarðhæð sem er fyrir hjól og fleira, hin er á efri hæð og er mjög rúmgóð og skipulögð.
* Íbúðin er á jarðhæð með sérinngangi, 3 svefnherbergjum og stórum sólpall með útsýni við friðaðan náttúrureit.
* Sérsmíðaðar Innréttingar
* Tvö sérmerkt bílastæði
* Snjóbræðsla
* Fjölskylduvænt umhverfi og stutt í alla helstu þjónustu
* Rúmgóð svefnherbergi, björt og opið skipulag
* Íbúðin var parketlögð og settir nýjir listar 2023
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
---|---|---|---|---|---|
13/05/2022 | 36.750.000 kr. | 53.900.000 kr. | 106.1 m2 | 508.011 kr. | Já |
14/12/2018 | 27.300.000 kr. | 35.900.000 kr. | 106.1 m2 | 338.360 kr. | Já |
10/04/2015 | 51.450.000 kr. | 23.900.000 kr. | 106.1 m2 | 225.259 kr. | Já |
07/11/2013 | 18.200.000 kr. | 20.250.000 kr. | 106.1 m2 | 190.857 kr. | Nei |
11/07/2008 | 16.425.000 kr. | 25.500.000 kr. | 106.1 m2 | 240.339 kr. | Nei |
12/07/2006 | 13.543.000 kr. | 20.500.000 kr. | 106.1 m2 | 193.213 kr. | Já |
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
260 | 91.3 | 69,4 | ||
260 | 83.1 | 64,9 | ||
260 | 104 | 68,9 | ||
260 | 145.2 | 65,9 | ||
260 | 91.3 | 69,4 |