Heillandi og fjölskylduvæn eign með auka íbúð á eftirsóttum stað í hjarta KópavogsVið kynnum til sölu vel skipulagða
fimm herbergja neðri hæð í tvíbýlishúsi með fallegum og rótgrónum garði við
Borgarholtsbraut 68 í Kópavogi. Eignin er staðsett í rólegu og barnvænu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, leikskóla, grunnskóla, Kópavogslaug og vinsæla leikvelli.
Eignin er skráð
107,7 fermetrar og aukaíbúðin er
49 fermetrar. - Frábær staðsetning
- Auka íbúð í bakhúsi með útleigumöguleikum
- EinkabílastæðiFyrir nánari upplýsingar:Tinna Bryde A.Lgf í síma 660-5532 eða tinna@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í síma 775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
www.verdmat.iswww.eignavakt.isGóð ráð fyrir kaupendur Fyrirhugað fasteignamat 2026 er 105.800.000 kr.Eignin skiptist svona:Sameiginleg
forstofa með efri hæð
Breiður og bjartur
gangur með innfelldu fatahengi. Gangurinn tengir saman allt rými íbúðarinnar.
Hjónaherbergi með fataskáp og parketi á gólfi
Tvö svefnherbergi með parketi á gólfi
Rúmgóð og björt
stofa og borðstofa með stórum glugga út í garð
Eldhús með snyrtilegri hvítri innréttingu og dúk á gólfi
Baðherbergi með sturtu, nýlegri innréttingu og upphengdu salerni
Þvottahús sem er sameiginlegt með efri hæð
Aukaíbúð í bakhúsi:Á lóðinni er rúmgott,
49 fm bakhús sem er innréttað sem íbúð.
Skipulag íbúðar er eftirfarandi: Forstofa/gangur, eldhúskrókur, stofa, svefnherbergi með fataskáp og baðherbergi.
Dúkur er á gólfum. Húsið hentar mjög vel fyrir útleigu, heimagistingu, eða sem frábær aðstaða fyrir ungling eða fjölskyldumeðlim.
Lóð og aðstaða:Um 1.000 fm
rótgróin lóð sem nýtist vel fyrir börn, garðyrkju og samveru
Á lóðinni er sandkassi,
sólpallur og garðhúsgögn
Lagning fyrir rafhleðslustöð fyrir rafbíl við einkabílastæði (sem fylgir neðri hæð) Pláss fyrir 2–3 bíla.
Viðhald og endurbætur:Ofna- og hitavatnslagnir endurnýjaðar 2005
Frárennslislagnir endurnýjaðar 2006 (frá kjallara og út í brunn á baklóð)
Þakplötur endurnýjaðar á framhúsi 2005 og á auka íbúð í bakhúsi 2024
Framhús
málað og sprunguviðgert sumarið 2024
Gluggar og gler vel viðhaldið, allt gler endurnýjað 2002
Umhverfi og uppbygging:Kársnesið er í örum vexti og er að þróast hratt. Handan götunnar er stór leikvöllur (Stelluróló) og sparkvöllur. Í götunni eru fleiri stærri leiksvæði fyrir börn, sundlaug, skóli og leikskóli, tónlistarsalur og listasafn. Einnig er sutt í Sky Lagoon yst á Kársnesinu. Eignin hentar einstaklega vel fyrir fjölskyldufólk sem vill rólegt og rótgróið umhverfi með alla helstu þjónustu í göngufæri.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.