Laugardagur 5. júlí
Fasteignaleitin
Opið hús:07. júlí kl 17:30-18:00
Skráð 2. júlí 2025
Deila eign
Deila

Jöfursbás 11c

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
64.8 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
57.478.157 kr.
Fermetraverð
887.009 kr./m2
Fasteignamat
56.050.000 kr.
Brunabótamat
41.700.000 kr.
Mynd af Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2021
Lyfta
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2509815
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
5
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
4
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðvestur svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Á aðalfundi 2025 var stjórn veitt heimild til þess að láta framkvæma ástandsmat á stömmum. Reiknað er með að kostnaður verði um 8.000 kr. á hverja eign. Sjá aðalfundargerð 29.01.2025
Gallar
Í yfirlýsingu húsfélags dags. 2.7.2025 er vísað í stöðu á matsmáli sem húsfélagið er með í gangi varðandi ýmsa galla sem að vart varð við fljótlega eftir afhendingu íbúða í húsi C. 
Að sögn seljanda hefur hann ekki orðið var við galla í sinni íbúð fyrir utan að hurð inn í íbúð hans var óþett og lak inn um hana í tvígang fyrir nokkrum árum. Eigandi lét kanna ástand hurðarinnar og var hún lagfærð í kjölfar þeirrar skoðunar. Fljótlega eftir afhendingu hússins urðu nokkrir íbúar í Jöfusrbás 11C varir við parketlýs. Ástæða þess skv. meðfylgjandi gögnum er að parket var lagt of snemma þegar steypa var ekki nægilega þornuð, einnig var parket lagt ofan á svokallaðan plastdúk og var það einnig gert of snemma eða þegar steypa var ekki nægilega þornuð. Matsbeiðandi hefur beðið Eflu verkfræðistofu um að framkvæma rakamælingar á ýmsum stöðum. Þær mælingar hafa leitt í ljós að raki í gólfplötum, á þeim tíma þegar þær voru gerðar, voru á einhverjum stöðum yfir eðlilegum viðmiðunarmörkum en á öðrum stöðum virðist gólfplata hafa þornað út með eðlilegum hætti. 
Húsfélagið er með lögfræðing sem krefst úrbóta fyrir þeirra hönd. 
Vísað er í fundargerðir húsfélags 2022, 2023, 2024 og 2025 fyrir frekari upplýsingar vegna gallamála. 
Athygli er vakin á því að ekki er komin niðurstaða í gallamálið og því liggur ekki ljóst fyrir hvort eða hvenær  tjónið verður bætt.
Domusnova og Ingunn Björg löggiltur fasteignasali kynna nýlega og fallega 4. herbergja 64,8 fm íbúð á 5. hæð með sérinngangi og svölum til suðvesturs með glæsilegu útsýni til sjávar og fjalla í lyftuhúsi við Jöfursbás 11 C í Gufunesinu í Reykjavík. Fallegt og bjart alrými með samliggjandi eldhúsi og stofu með útgengi út á suðvestur svalir, þrjú svefnherbergi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara inn á baðherbergi en einnig er vel útbúið sameiginlegt þvottahús á jarðhæð. Sameiginlegur salur á jarðhæð sem íbúar geta leigt af húsfélaginu. Góð hjólageymsla. Glæsilegt útsýni er frá húsinu. 

Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi, fataskáp og fataslá.
Stofa/borðstofa með harðparketi á gólfi.  Útgengi á suðvestur svalir með fallegri sjávar og fjallasýn.
Eldhús er í opnu rými með stofu/borðstofu. Gott skápapláss. Filmuð innrétting, rúmgóð eyja. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi I er með góðum fataskápum og harðparket á gólfi.  
Svefnherbergi II er með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi III er með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi með upphengdu salerni, sturtuklefa og vaskaskáp. Skápur fyrir þvottavél og þurrkara. Tengi er til staðar fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi. Dúkur á gólfi. 
Í sameign er vinnuaðstaða/veislusalur, pósthús, þvottahús ásamt sameiginlegri hjóla og vagnageymslu í skúr á lóð. 

Nánari upplýsingar veitir:

Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is

- ATH AÐEINS FYRIR KAUPENDUR Á ALDRINUM 18-40 ÁRA. HLUTDEILDARLÁN EKKI Í BOÐI - HEIMILD ER FYRIR DÝRAHALDI - 
Um er að ræða íbúð byggða af Þorpinu Vistfélagi á sjávarlóð í Gufunesi í Reykjavík. 
Lyfta frá jarðhæð sem opnast á stigagang þaðan sem gengið er inn á svalagang að sér inngangi íbúðarinnar.
Svalir til suðurs en einnig svala gangur framan við innang til norðurs sem vísar í átt að fallegum skúlptúrgarði Hallsteins Sigurðssonar.
Upphitaðir göngustígar inni í porti á milli húsa.
Einstakt útsýni til sjávar og fjalla.


Íbúðirnar hafa haft afnot af matjurtargarði sem Reykjavíkurborg lánar Jöfursbás 11. 

Íbúðirnar eru á sjávarlóð nyrst í Gufunesi. Frá lóðinni er glæsilegt útsýni að Viðey og Geldinganesi ásamt gönguleið yfir í Geldinganes. Í hverfinu og meðfram lóðinni verða göngu- og hjólastígar á borgarlandi meðfram ströndinni sem tengjast grónum íbúðasvæðum í Grafarvogi fyrir sunnan og ofan þessarar nýju byggðar. Megin stígar innan lóðar eru malbikaðir, við aðkomu og innganga eru stéttar hellulagðar. Lögð er áhersla á algilda hönnun þar sem aðgengi allra er tryggt. Gert er ráð fyrir trjágróðri við megin gönguleiðir og til rýmismyndunar við dvalarsvæði. Íbúðahúsin mynda garðrými fyrir skjólgott torg, leikvöll og grasfleti. Torgið er við aðalinngang hverfisins við sameiginleg rými íbúa. Leik- og dvalaraðstaða er norðan megin gegnt ströndinni. Tekið er tillit til sólarátta og byggð skipulögð þannig að garðrýmin eru í góðu skjóli fyrir veðri og vindum.Lögð er áhersla á sameiginlegan frágang allra garðrýma.

Deiliskipulag fyrir Gufunes, nýjasta hverfi Reykjavíkur, byggir á verðlaunatillögu hollensku arkitektastofunnar jvantspijker + Felixx sem árið 2016 hreppti fyrstu verðlaun í hugmyndasamkeppni um Gufunessvæðið. Í vinningstillögunni segir að Gufunes eigi að verða eins konar ventill fyrir ungt fólk sem kýs grósku og borgarbrag í stað úthverfa. Tillagan nýtir óhefluð umhverfisgæði og staðaranda sem grunn að samfélagi þar sem tækifæri, hagkvæmni og upplifun verða í forgrunni.




Nánari upplýsingar veita:
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
16/04/202117.450.000 kr.36.494.000 kr.64.8 m2563.179 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Rósarimi 2
Opið hús:09. júlí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Rósarimi 2
Rósarimi 2
112 Reykjavík
67.8 m2
Fjölbýlishús
312
883 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Garðhús 10
Skoða eignina Garðhús 10
Garðhús 10
112 Reykjavík
66.4 m2
Fjölbýlishús
211
857 þ.kr./m2
56.900.000 kr.
Skoða eignina Háaleitisbraut 44
Háaleitisbraut 44
108 Reykjavík
70.2 m2
Fjölbýlishús
211
796 þ.kr./m2
55.900.000 kr.
Skoða eignina Bragagata 34b
Opið hús:08. júlí kl 16:30-17:00
Skoða eignina Bragagata 34b
Bragagata 34b
101 Reykjavík
48.5 m2
Parhús
312
1132 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin