Einstakt tækifæri til að eignast sjarmerandi einbýlishús skammt frá Elliðavatni.
Árni Björn Erlingsson lgf. og Fasteignaland kynna eignina Dimmuhvarf 9b, 203 Kópavogur, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 232-9264 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðarleiguréttindi. Eignin Dimmuhvarf 9b er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 232-9264, birt stærð 171.4 fm.
Lýsing:
Vel skipulagt og mikið endurnýjað eldra einbýlishús þar sem stór bílskúr hefur verið byggður við húsið. Húsið skiptist í stofu sem tengist eldhúsi, þrjú svefnherbergi, sjónvarpshol, salerni, þvottahús með sturtu. Í bílskúr er búið að innrétta herbergi með léttum veggjum sem auðveldlega væri hægt að breyta aftur, fyrir þá sem vilja stóran skúr, er einnig milliloft sem notað er líka sem herbergi. Falleg og gróin náttúruleg lóð umlykur húsið, þá er einnig heitur pottur og geymsluskúr (óeinangraður, sem byggður var 2015) á lóðinni.
Húsið er katalog hús frá Noregi, sett saman 1925 við Stokkseyri, flutt á nýjan sökkul 2014, húsið stækkað og byggður við það bílskúr á 2 hæðum (milliloft). Allir gluggar, þak, lagnir og einangrun er sett nýtt árið 2014 að sögn eiganda.
Nánari lýsing:
Forstofa: rúmgóð með flísum á gólfi.
Salerni: með flísum á gólfi og uppá miðjan vegg, klósett og vaskur.
Eldhús: með viðargólfi og smekklegri eldhúsinnréttingu og búr þar sem hægt er að geyma matvæli og annað.
Stofa: með viðargólfi og ljósum viðarpannel á veggjum og í lofti.
Hjónaherbergi: rúmgott með viðargólfi og góðu skápaplássi.
Herbergi 2: á efri hæð, lítið og smekklegt að hluta undir súð, með viðargólfi.
Herbergi 3: á efri hæð, virkilega rúmt, og að hluta undir súð, með viðargólfi. Í herberginu er lokarekkja og fataherbergi.
Sjónvarpskrókur: mill herbergjanna á efri hæð, með viðargólfi.
Þvottahús: rúm þvottaaðstaða með flísum á gólfi, gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara, stór vaskur og rúm flísalögð sturta.
Bílskúr: með flísum á gólfi og hiti í gólfum, þarna er búið að gera milliloft sem er notað sem herbergi, og einnig er búið að útbúa stórt herbergi með léttum veggjum í skúrnum sjálfum, auðvelt er að breyta þessu til baka fyrir þá sem vilja hafa pláss fyrir bílinn, einnig væri hægt að breyta þessu í leigu einingu, þar sem þarna er sér inngangur.
Þetta er eftirsótt staðsetning enda í mikilli nálægð við náttúruna, Elliðavatn þarna í göngufjarlægð, stutt er í þjónustu og verslun.
Sjón er sögu ríkari, pantið skoðun.
Nánari upplýsingar veitir:
Árni Björn Erlingsson
Löggiltur fasteigna og skipasali.
arni@fasteignaland.is 898-0508
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.