Litla Fasteignasalan s: 482-9900 kynnir -Vel skipulagt 4 herbergja endaraðhús ásamt bílskúr innst í botnlanga
með verönd, grónum garði og stóru malbikuðu bílaplani.
Samtal 136,4 m
2 þar af er bílskúr 28,1 m
2Lýsing eignar: Forstofa með flísum á gólfi.
Eldhús með snyrtilegri innréttingu, helluborði, bakaraofn í vinnuhæð, háfur og tengi fyrir uppvöskunarvél.
Stofa er björt með parketi á gólfi, útgengt er út á pall úr stofu. Borðstofa og stofa eru í sameiginlegu rými.
Flísar í eldhúsi og borðstofu.
Hjónaherbergi með stórum fataskáp og parket á gólfi, útgengt á lítinn pall í bakgarði.
Svefnherbergi 2 með fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi 3 með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með baðkari, hlífðargleri, með rúmgóðri innréttingu, upphengdu salerni og handklæðaofni.
Þvottahús með flísum á gólfi og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er stór með glugga, vegghillum, parket á gólfi og innangengt úr forstofu. Möguleiki á nýta sem
4 herbergið.
Á gangi eru mjög rúmgóðir skápar.
Bílskúr með flísalagður með bílskúrshurð. Innangengt úr bílskúr inn í íbúð.
Garður er gróinn, með lítilli timburverönd í bakgarði. Að framan er pallur með skjólveggjum.
Húsið er timburhús með steniklæðningu. Innkeyrsla er rúmgóð og malbikuð.
Sjá staðsetninguÖrskammt frá nýju Nettó og stutt gönguleið að sækja Leikskólann Árbæ og nýja miðbæinn.
Nánari upplýsingar veitirSigþrúður J. Tómasdóttir
sími 892-0099 sissu@litlafasteignasalan.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Litla Fasteignasalan benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.