RE/MAX & Oddur Grétarsson kynna:Glæsileg og mikið endurnýjuð 3 herbergja íbúð á 1. hæð í góðu fjölbýli að Kóngsbakka 8 í Reykjavík. Íbúðin er skráð 79,5 fm þar af geymsla 7,4 fm. Geymslan er í kjallara ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Búið að setja hleðslustöðvar fyrir rafbíla á bílastæði.
Allar nánari upplýsingar veitir Oddur í síma 782-9282 eða á oddur@remax.is
SMELLTU HÉR og þú færð SÖLUYFIRLIT sent strax
SMELLTU HÉR og skoðaðu þessa eign í 3-DForstofa parket á gólfi og stór fataskápur.
Eldhús parket á gólfi, gott skápapláss, tengi fyrir uppþvottavél.
Stofa og borðstofa eru í sameiginlegu opnu og björtu rými með útgengi í garð sem snýr í vestur. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með opnum fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi parket á gólfi og fataskápur.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtu, upphengt salerni og handklæðaofn.
Þvottahús er innan íbúðar með flísum á gólfi. Gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu.
Húsið hefur fengið gott viðhald og á árunum 2020-24 var húsið múrviðgert og málað, austurhlið og vesturgaflar klæddir, þak lagað og skipt um járn. Gott leiksvæði með leiktækjum fyrir börnin í snyrtilegum sameiginlegum garði. Stutt í alla helstu þjónustu, verslanir, skóla, leikskóla o. fl.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk