Fasteignasalan Hraunhamar og Einar Örn lgf. kynna bjarta og vel skipulagða 4–5 herbergja endaíbúð á efstu hæð í vinsælu fjölskylduhverfi í Setbergi. Íbúðin hefur verið smekklega endurnýjuð, er með stórri stofu, fallegu eldhúsi, þremur svefnherbergjum með möguleika á því fjórða, tveimur svölum og góðri geymslu í kjallara.Eignin er skráð samkvæmt FMR samtals 120,5 fm en þar af er íbúð 113,5 fm og 7 fm geymsla í kjallara. Nánari lýsing:Forstofa parketlögð með fataskápum.
Björt og rúmgóð
stofa og
borðstofa með parketi á gólfi og útgengi á svalir. Hægt er að stúka af hluta stofunnar og útbúa fjórða svefnherbergið.
Endurnýjað
eldhús með hvítri U-laga innréttingu auk skápa við vegg. Gott skápapláss, ofn í vinnuhæð, helluborð og vaskur við glugga.
Rúmgott h
jónaherbergi með parketi á gólfi, fataskápum og útgengi á svalir.
Svefnherbergi II er parketlagt með fataskáp.
Svefnherbergi III er parketlagt með fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtu, klósett, skápur, innrétting með handlaug og speglaskáp.
Þvottahús með flísalögðu gólfi, vinnuborði og hillum.
Í kjallara er 7 fm g
eymsla ásamt sameiginlegri hjólageymslu
.
Eigendur réðust í umfangsmiklar endurbætur á eigninni árið 2019, m.a.:- Eldhús endurnýjað.
- Nýjir skápar settir upp í öllum rýmum.
- Nýtt parket lagt á gólf.
- Nýjar innihurðir.
- Skipt um gler í hluta glugga.
- Rafbúnaður uppfærður með fjölgun rofa og tengla.
Eignin er einstaklega vel staðsett í þessu eftirsótta og fjölskylduvæna hverfi þar sem örstutt er í skóla og leikskóla. Allar nánari upplýsingar veitir Einar Örn Ágústsson löggiltur fasteignasali, s: 888-7979 eða á einar@hraunhamar.is.
Skoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.