ALLT fasteignasala kynnir í sölu eignina:Bjarkardalur 21, 260 Reykjanesbær, nánar tiltekið eign merkt 02-03, fastanúmer 253-0411 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin er skráð sem hér segir hjá FMR, birt stærð 108.2 fm.
Vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð á annari hæð í nýlegu fjölbýli.
* Góðar suðursvalir
* Þrjú svefnherbergi
* 4,2m2 sér geymsla
Nánari upplýsingar veita:
Ásta María, Löggiltur fasteignasali, í síma 847-5746, tölvupóstur asta@allt.is.
Unnur Svava, Löggiltur fasteignasali, í síma 868-2555, tölvupóstur unnur@allt.is
Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Parketlögð, rúmgóður fataskápur.
Eldhús: Parket á gólfi, vönduð innrétting með eldhúseyju, ofni og helluborði. Ísskápur innbyggður og innbyggð uppþvottavél.
Stofa: Parket á gólfi, hurð er út á svalir frá stofu. Stofa liggur samhliða eldhúsi í björtu, opnu rými.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum að hluta til. Vönduð innrétting með handlaug. Upphengt salerni og sturta afstúkuð með gleri. Aðstaða er fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi.
Svefnherbergin eru öll með parketi á gólfi og góðum fataskápum.
Eignin er vel staðsett með tilliti til allrar helstu þjónustu, leik- og grunnskóla. Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.