LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu bjarta og rúmgóða 3–4ra herbergja endaíbúð á 3. hæð við Álftamýri 8 í Reykjavík. Eignin er mikið endurbætt bæði að innan og utan og býður upp á gott skipulag, björt rými og svalir til austurs. Um er að ræða fjölskylduvæna íbúð á vinsælum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
Birt stærð eignarinnar er 99,5 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, þar af eru tvær geymslur á jarðhæð, annars vegar 6,2 fm á jarðhæð og hins vegar 2,9 fm undir útirtöppum.
Eignin skiptist í forstofu/hol, stofu og borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi (voru áður tvö) og baðherbergi. Eigninni fylgja tvær geymslur auk hlutdeildar í sameign með sameiginlegu þvottahúsi, þurrkherbergi og hjóla- og vagnageymslu.SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT - Allar frekari upplýsingar veitir Þórey í síma 663 2300 eða thorey@fastlind.is
Nánari lýsing
Forstofa/hol með fatahengi, harðparket á gólfi.
Eldhús með nýlegri innréttingu og tengi fyrir þvottavél, harðparket á gólfi.
Borðstofa í björtu og opnu rými með útgengi á austursvalir, harðparket á gólfi.
Stofa, björt og rúmgóð, harðparket á gólfi.
Herbergi I með fataskáp, harðparket á gólfi.
Herbergi II með fataskáp, harðparket á gólfi.
Herbergi III (var áður hluti af stofu), harðparket á gólfi.
Baðherbergi nýlega endurbætt með innréttingu, upphengdu salerni og walk-in sturtu, flísalagt.
Geymsla I á jarðhæð með hillum, málað gólf (6,2 fm).
Geymsla II undir útidyratröppum, málað gólf (2,9 fm).
Húsið hefur fengið gott og reglulegt viðhald, sprunguviðgert og málað, svalir og svalahurðir endurnýjaðar, nánast allt gler endurnýjað og flestir gluggar. Ný hurð var sett á útigeymslu árið 2023 og frárennslislagnir og stofn hafa verið endurnýjuð árið 2025. Þá hefur þakjárn og rennur verið endurnýjað.
Sameign er snyrtileg með sérgeymslum, sameiginlegu þvottahúsi og þurrkherbergi ásamt hjóla- og vagnageymslu
. Lóðin er fullfrágengin með tyrfðum flötum og sameiginlegum bílastæðum við framhlið hússins.
Eignin er staðsett á vinsælum og miðsvæðis stað í Reykjavík þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, verslunarkjarnann Kringluna og helstu samgönguæðar. Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða gegnum thorey@fastlind.is
Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.Allir kaupendur okkar fá
Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.