Miklaborg kynnir: Stórglæsilegt heilsárshús í landi Miðengis Grímsnesi. Húsið er á einni hæð og stendur á eins hektara lóð. Skipulag þess er afar gott en húsið var byggt 2012 og er það steypt og með gólfhita. Umhverfið er ægifagurt og stendur húsið á endalóð í rótgrónu hverfi sem er með læstu hliði. Útsýni frá húsinu er stórglæsilegt og stórir gólfsíðir gluggar í stofu tryggja að það skarti sínu fegurasta hvar sem staðið er í húsinu. Heitt og kalt vatn ásamt rafmagni.
Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is
Nánari lýsing
Anddyri: Rúmgott með flísum á gólfi. Anddyrið tengir saman alrými og hjónasvítu sem er í vesturenda hússins. Stórir fataskápar fyrir yfirhafnir og annað.
Alrými: Tæplega 70 fm að stærð með stóru eldhúsi með miklu skápaplássi, vönduðum tækjum og tvíbreiðum ísskáp. Eldunareyja er með vaski og hangandi háf yfir helluborði Stofa og borðstofuhluti eru í rúmu 50 fm rými. Þaðan er útgengt út á viðarverönd með óskertu útsýni. Á gólfum stofu og eldhúss er fallegt gegnheilt viðarparket.
Svefnherbergi: Hjónasvíta er í öðrum enda hússins og er með sér baðherbergi með sturtu. Tvö önnur rúmgóð svefnherbergi.
Bílskúr: 40 fm að stærð með flísalögðu gólfi og fjarstýrðum hurðaopnara fyrir bílskúrshurðina.
Viðarverönd er mjög falleg en þar er heitur pottur og eins og áður er nefnt óskert útsýni fallegrar íslenskrar náttúru. Góður aðganegur er að húsinu, löng heimreið með nægum bílastæðum. Húsið er á afgirtu svæði með læstu hliði.
Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 22/12/2025 | 141.100.000 kr. | 141.100.000 kr. | 227.7 m2 | 619.675 kr. | Nei |
| 11/11/2011 | 2.250.000 kr. | 30.000.000 kr. | 170 m2 | 176.470 kr. | Já |
| 28/12/2010 | 2.250.000 kr. | 10.500.000 kr. | 170 m2 | 61.764 kr. | Nei |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
105 | 140,7 | 212 | ||
105 | 129,7 | 168,9 | ||
311 | 89,8 | 54,9 | ||
806 | 58,1 | 35 | ||
311 | 129,1 | 59,9 | ||
806 | 41,9 | 19,9 |