Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna í einkasölu:
Vandað og vel skipulagt 88,7 fm. sumarhús með sér 21,2 fm. gestahúsi og sér 36,8 fm. bílskúr við Sléttuveg 6, 846 Hrunamannahreppi/Flúðum.
Heildarstærð er 146,7 fm. Um er að ræða vandað, vel staðsett og vel byggt hús í nálægð við golfvöllinn og golfklúbbinn Flúðir.
Glæsileg lóð, vel hirt og gróinn með fallegum trjágróðri allt í kring ásamt litlu timburhúsi og rólu. Húsið, gestahúsið og bílskúrinn er timburhús byggt á steyptri plötu með gólfhita. Aukalega er svo lítið timburhús á lóðinni fyrir sláttu traktor, sláttuvélar ofl.
Stór og flott timburverönd með heitum potti. Verönd er skjólgóð og snýr vel á móti sól. Flott og góð aðkoma er að húsinu.
Mjög stutt er út á golfvöllinn, í verslun, veitingastaði og ýmsa þjónustu á Flúðum. Heitt og kalt vatn er tengt á veitukerfi Flúða (Hrunamannahrepps).
Allt innbú fylgir með að undanskildum persónulegum munum seljenda.
Smelltu á linkinn til að skoða sumarhúsið í 3DBókið skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 eða með tölvupósti á netfangið gulli@remax.is
Nánari lýsing: Góð aðkoma er að aðalhúsinu sem er 88,7 fm. og gott pláss fyrir bílastæði. Komið er inn í forstofu með fatahengi og aðgengi í önnur rými hússins.
Harðparket á gólfum að undanskildu baðherbergi, þar eru flísar. Gólfhiti er á öllu húsinu. Alrýmið er bjart og rúmgott með stofu, borðstofu og eldhús. Útgengi er þaðan út á verönd í suð-vestur með skjólveggjum og yfirbyggt að hluta.
Eldhúsinnrétting er U-laga með gott vinnu- og skápapláss. Uppþvottavél, bökunarofn og helluborð með kolasíu viftu þar fyrir ofan og frístandandi ísskáp þar við hlið. Gluggar gefa góða birtu inn. Svefnherbergisgangur er með rúmgott hjónaherbergi með fataskáp í, þar að auki eru tvö önnur svefneherbergi. Baðherbergið er stórt og gott, dökkar flísar á gólfi og hvítar flísar á veggjum. Hvít baðinnrétting með handlaug og skúffum þar undir. Baðskápur þar við hlið og sepegil með lýsingu í fyrir ofan handlaug. Upphengt salerni og handklæðaofn. Sturta með gler hurð til að loka af. Gluggi og sér hurð út á verönd, þar er heitur pottur á verönd í skjólgóðu umhverfi og aðgengi að sér þvottahúsi/lagnarými með glugga sem veitir birtu inn, flísum á gólfi og tengi og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Gestahúsið er 21,2 fm. Þar er harðparket á gólfi og gólfhiti. Herbergi er með opnanlegum glugga og sér salerni með handlaug og opnalegum glugga í því rými. Frábær viðbót við húsið. Á hinum enda gestahússins er annar inngangur sem eigandi hefur nýtt sem geymslu. Auðvelt væri að breyta því í annað svefnherbergi eða stækka gestasvítuna sem því nemur. ( skráð sem geymsla )
Bílskúrinn er 36,8 fm. Gólfhiti, heitt og kalt vatn og rafdrifinn hurð. Gluggar veita birtu inn. ( skráð sem geymsla )
Auk þess er lítið timburhús á lóðinni sem nýtt er sem geymsla fyrir sláttutraktor og sláttuvél ofl. Húsið var byggt árið 2011, gestahúsið var byggt árið 2014 og bílskúrinn var byggður árið 2024. Allar framkvæmdir og allt viðhald við húsið virðist vera til fyrirmyndar líkt og sjá má við sjónskoðun á húsinu, bílskúrnum og á lóðinni í heild sinni.
Lóðin er 5.217,3 fm. leigulóð leigð til 50 ára í senn, samningur er frá 12. ágúst 2010 til 12. ágúst 2060 og framlengis sjálfkrafa í 5 ár í senn, ef hvorugur aðili segir upp leigunni. Leigugjald fyrir hið leigða land er 57.060 kr á ári, leigan er verðtryggð miðað við vísitölu byggingarkostnaðar, 497 stig þann 01.nóvember 2009, og miðast verðtyggingarálag leigugjaldsins við 1 nóvember ár hvert. Nálgast má leigusamning hjá fasteignasala. Uppreiknað er leigan rúmar 100.000 kr.
Nánari upplýsingar: Guðlaugur J. Guðlaugsson/Gulli löggiltur fasteignasali í síma
661-6056 / gulli@remax.is
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.-