** Opið hús þriðjudaginn 25. ágúst frá kl. 16:30 til 17:00 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 **
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og björt 156,9 m2, 4ra herbergja íbúð á 2.hæð með bílskúr í lyftuhúsi við Litlakrika 2 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 156,9 m2, þar af íbúð 113,6 m2, geymsla 13,8 m2 og bílskúr 29,5 m2. Vinsæl staðsetning miðsvæðis í Mosfellsbæ. Stutt í skóla og þjónustu. Svalir í suðurátt og mun seljandi setja upp svalalokun fyrir afhendingu. Bílskúr er með epoxý á gólfi. Geymsla er inn af bílskúr. Gengið er úr bílskúr/geymslu inn á stigagang. Fyrir framan hús er merkt stæði. Búið er að setja upp hleðslustöðvakerfi frá ON við stæðin.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent straxNánari lýsing:Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Stofa og borðstofa er í björtu opnu rými með parket á gólfi. Úr stofu er útgengt á svalir í suðurátt. Seljandi mun setja upp svalalokun fyrir afhendingu.
Eldhús er með parket á gólfi og góðri innréttingu með blástursofni, helluborði, viftu, vaski og innbyggðri uppþvottavél.
Hjónaherbergi er rúmgott með parket á gólfi og góðum fataskáp.
Svefnherbergi nr. 2 er með parket á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi nr. 3 er með parket á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með góðri innréttingu, vegghengdu salerni, baðkari, sturtu og handklæðaofni.
Þvottaherbergi er flísalagt og með innréttingu. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu í vinnuhæð
Bílskúr er á jarðhæð. Epoxý á gólf og innkeyrsluhurð með bílskúrshurðaopnara. Innaf bílskúr er
geymsla. Úr geymslu er gengið inn á stigagang. Bílskúr er skráður 29,5 m2 og geymsla 13,8 m2.
Eigninni fylgir hlutdeild að hjóla- og vagnageymslu í kjallara.
Verð kr. 104.900.000,-