Mánudagur 28. september
Fasteignaleitin
Skráð 28. sept. 2026

Bakkagata 3 - Melar

EinbýlishúsNorðurland/Kópasker-670
210.4 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
77.900.000 kr.
Fermetraverð
370.247 kr./m2
Fasteignamat
24.750.000 kr.
Brunabótamat
84.500.000 kr.
Mynd af Bergþóra Höskuldsdóttir
Bergþóra Höskuldsdóttir
Löggildur fasteigna- og skipasali
Byggt 1930
Garður
Pallur
Heitur pottur
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2166843
Landnúmer
154279
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Nýlega endurnýjað
Raflagnir
Nýlega endurnýjað
Frárennslislagnir
Nýlega endurnýjað
Gluggar / Gler
Nýlega endurnýjað
Þak
Nýlega endurnýjað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Pottastýring er inni á baðherbergi í stúdíóíbúð en skv. upplýsingum frá seljanda er ekki mikil framkvæmd að breyta því ef nýr eigandi vill.
Gallar
Kominn er tími á að lakka aftur gólf á baðherbergi og forstofugangi í stúdíóíbúð.
Kvöð / kvaðir
ATH, myndir af eign eru unnar með gervigreind.
Gistihúsið Melar að Bakkagötu 3, Kópaskeri.

Einstaklega fallegt og mikið uppgert þriggja hæða einbýlishús að Bakkagötu 3 á Kópaskeri, byggt 1930.
Í húsinu er starfrækt gistihús allan ársins hring en á sumrin er einnig rekið lítið kaffihús sem stendur á sömu lóð.
Frábært tækifæri í ferðaþjónustu, í næsta nágrenni við Demantshringinn og Vatnajökulsþjóðgarð.

Gistihúsið stendur á einstökum stað við fjöruna á Kópaskeri. Tveir heitir pottar eru við húsið og hægt að njóta dásamlegrar nátturu um leið og slakað er á í pottunum, eins er hægt að ganga nokkur skref niður í fjöruna og kæla sig í sjónum.


Húsið er á þremur hæðum, í kjallara er stúdíóíbúð fyrir 2-4, á miðhæð er rúmgóð stofa og eldhús ásamt baðherbergi og uppi á þriðju hæðinni eru fjögur svefnherbergi og snyrting.
Boðið er upp á morgunverð og er hann framreiddur á litla kaffihúsinu, eins er hægt að kaupa kvöldverð yfir sumartímann.
Steyptar stéttar eru allt í kringum húsið og gott aðgenngi að heitu pottunum og baðhúsunum þar sem eru sturtur og snyrting.

Staðsetning gistihússins er einstök og hægt að njóta náttúrunnar allt í kring, en stutt er í Vatnajökulsþjóðgarð, Dettifoss, Ásbyrgi, Rauðanúp og Sléttu svo eitthvað sé nefnt, endalaust úrval er af fallegum gönguleiðum er á svæðinu.
Sjá melarguesthouse.is.
Húsið hefur verið endurnýjað að mestu leiti utan og innan frá árinu 2017 og er hægt að fá lista yfir framkvæmdir hjá fasteignasölunni.

Húsið Melar er skráð 210, 4 fm., en er aðeins minna þar sem búið er að rífa viðbyggingu sem var fyrir aftan húsið og var orðin ónýt.
Kaffihúsið er hins vegar ekki inni í skráðum fermetrum hússins.
Lóðarleigusamningur frá árinu 2018 og er ótímabundinn, lóðin er stór eða 2098 fm..

Nánari lýsing;
Stúdíóíbúð - forstofa, fatahengi og skápur sem auðvelt er að fjarlægja ef vill, þar er einnig aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Baðherbergi, rúmgóð sturta, handlaug og vegghengt salerni, hurð út á steypta verönd og að heitum pottum.
Alrými, þar eru nýleg eldhúsinnrétting, borðstofa, stofa og svefnrými, hjónrúmið er sérsmíðað með það í huga að hægt sé að nýta stórt rými undir því, sem gistiaðstöðu, rýmið var áður köld gryfja sem geymdi matvæli hússins.
Gólfin eru öll flotuð og lökkuð og með gólfhita.
Efri hæð og ris - gengið er upp tröppur frá austur hlið hússins og inn á miðhæðina. þar er komið inn alrými með rúmgóðri stofu og eldhúsi ásamt borðstofu.
Fallegt útsýni út á sjóinn, er úr stofu en þar er rennihurð sem hægt er að opna á góðviðrisdögum. 
Í eldhúsi er hvít, nýleg innrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.
Baðherbergi er með góðri sturtu, skolvask, handlaug og vegghengdu salerni.
Lítil geymsla er undir stiga sem liggur upp á þriðju hæð hússins.
Vinil parket er á gólfum og gólfhiti.
Upprunalegur timburstigi lliggur úr alrýminu og er gengið upp á pall og af honum inn í öll herbergin á hæðinni ásamt snyrtingu.
Fjögur svefnherbergi eru á hæðinni, þrjú tveggja manna herbergi og eitt einstaklingsherbergi en í því herbergi er pláss fyrir auka dýnu á gólf ef vill.
Einnig er svefnloft í austurherbergi og geta því samtals 9 manns gist í þessum fjórum herbergjum. Möguleiki er að gera svefnloft í vesturherbergi.
Snyrting er með handlaug og vegghengdu salerni, þar var sett gólfhitakista sem er ótengd þar sem hæðin státar en af upprunalegu gólfborðunum að mestu en möguleiki á að leggja gólfhita síðar, er fyrir hendi.
Rafmagnsofnar eru í herbergjum.
Upprunalegu gólfborðin eru til staðar á öllum gólfum utan snyrtingu, þar eru nýleg hvíttuð gólfborð.

Kaffihús;
Er 15 fm. gámur sem búið er að einangra og klæða og smíða á risloft sem er nýtt sem geymsla.
Þetta er eitt minnsta kaffihús landsins en sumarið 2026 heimsóttur yfir eittþúsund gestir kaffihúsið. 
Hægt er að opna gaflinn á húsinu og njóta þess að horfa út á sjóinn.
Húsið er að mestu klætt innan með endurnýttu timbri, gamlir skápar úr íbúðarhúsinu eru einnig nýttir þar og setja fallegan svip á umhverfið.
Heitt og kalt vatn ásamt frárennsli var lagt í húsið ásamt rafmagni, tveir vaskar eru í vinnuaðstöðu og boðið er upp á Wifi.
Flísar á gólfi og gólfhiti.

Baðhús og heitir pottar;
Steypt plata er undir baðhúsi og snyrtingu, timburgrind klædd með bárujárni sem kom af þaki íbúðarhússins þegar því var skipt út.
Tveir búningsklefar með einni sturtu á hvorum stað og ein snyrting með handlaug og salerni. Einnig er þvottavél og þurrkari til afnota fyrir gesti hússins.
Tveir heitir pottar frá Normax, eru við baðhúsin, timburpallar í kringum potta og skjólveggir úr bárujárni af gamla þaki íbúðarhússins.

Á steyptri  verönd við húsið, sem snýr til suðurs, er fallegt setusvæði og einstakt útsýni út á sjóinn.
Hitalagnir eru í stéttum við hús en eftir er að tengja kerfið.

SELJENDUR SKOÐA SKIPTI Á ANNARRI FASTEIGN.

Fasteignin er í einkasölu hjá Eignaveri. 



Í nágrenni:
Strandlengjan við Öxarfjörð, einstakt landslag og útivistarsvæði fyrir náttúruunnendur.
Ásbyrgi og Gljúfrastofa er í um 35 mínútna aksturs fjarlægð frá Kópaskeri, þar er einnig golfvöllur.
Raudinúpur norðan Kópaskers. Þar er stórkostlegt sjávarútsýni, klettar og mikið fuglalíf. 
Hraunhafnartangi er yst á Melrakkasléttu. Þar stendur viti nánast við nyrsta odda meginlands Íslands. Landslagið er sérstakt og þar er gott fuglasvæði.
Melrakkaslétta, þar eru tjarnir, heiðar, sjávarlón, fuglalíf og afskekktar strendur. 
Dettifoss og Hafragilsfoss.
Vatnajökulsþjóðgarður, t.d. Hljóðaklettar og Vesturdalur.


Allar nánari upplýsingar veita,
Arnar     s; 898-7011     /arnar@eignaver.is
Begga    s; 845-0671    /begga@eignaver.is

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
02/11/20167.910.000 kr.2.200.000 kr.210.4 m210.456 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (61)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Langafit 24
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Langafit 24
Langafit 24
210 Garðabær
190.6 m2
Einbýlishús
723
889 þ.kr./m2
169.500.000 kr.
Skoða eignina Virkisás 4
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Virkisás 4
Virkisás 4
221 Hafnarfjörður
214.5 m2
Einbýlishús
4
629 þ.kr./m2
134.900.000 kr.
Skoða eignina Ísleifsbúð 22
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Ísleifsbúð 22
Ísleifsbúð 22
815 Þorlákshöfn
193.1 m2
Raðhús
524
570 þ.kr./m2
110.000.000 kr.
Skoða eignina Hraunkambur 1
3D Sýn
Bílskúr
Skoða eignina Hraunkambur 1
Hraunkambur 1
220 Hafnarfjörður
195.1 m2
Einbýlishús
624
712 þ.kr./m2
139.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin