Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallegt, vel skipulagt og þó nokkuð endurnýjað 215,7 fermetra einbýlishús á einni hæð með innbyggðum 36,2 fermetra bílskúr á mjög góðum stað á móti suðri við Skógarlund í Garðabæ.
Húsið var þó nokkuð endurnýjað hið innra fyrir um 10 árum síðan, en þá var m.a. skipt um eldhúsinnréttingu og tæki, allar innihurðir og gólfefni endurnýjuð, gestasnyrting endurnýjuð o.fl.
Gler í húsinu hefur verið endurnýjað að hluta.
Lýsing eignar:
Forstofa, flísalögð og stór með gólfsíðum gluggum. Úr forstofu er innangengt í bílskúr.
Hol, parketlagt.
Gestasnyrting, innaf holi, flísalagt gólf og hluti veggja, vegghengt wc og vaskskápur.
Samliggjandi stofur, parketlagðar og bjartar og bæði gengið í þær úr holi og úr eldhúsi.
Eldhús, parketlagt og rúmgott með nýlegum hvítum innréttingum og nýlegri stórri eyju með innbyggðum stórum vaski, tengi fyrir uppþvottavél og marmara á borðum. Gashelluborð í innréttingu og marmari á borði að hluta og stór borðaðstaða á eyju.
Sólskáli, sem er opinn við eldhús, er 18,2 fermetrar að stærð, flísalagður og bæði með gólfhita og nýlegum ofnum og ofnalögnum. Gólfsíðir gluggar og þak að hluta úr gleri. Úr skála er útgengi á skjólsæla og stóra viðarverönd til suðurs með heitum potti og föstum blómakerjum.
Hjónaherbergi, parketlagt og stórt.
Barnaherbergi I, parketlagt og stórt ( á teikningum er þetta herbergi sýnt sem tvö barnaherbergi).
Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir, sturtuklefi, vegghengt wc., handklæðaofn, innrétting og fastur spegill á vegg.
Barnaherbergi II, parketlagt og stórt.
Barnaherbergi III, parketlagt og stórt.
Bílskúr, er mjög rúmgóður og bæði með innkeyrsluhurð og gönguhurð. Rennandi heitt og kalt vatn og vaskur auk góðrar geymsluaðstöðu.
Þvottaherbergi, innaf bílskúr er með glugga og lökkuðu gólfi.
Geymsluloft, er yfir húsinu og farið í það úr einu barnaherbergja.
Húsið að utan lítur vel út og var allt málað árið 2023. Þakjárn, þakkantur, þakrennur og niðurföll líta vel út.
Lóðin, sem er 774,0 fermetrar að stærð, er fullfrágengin og ræktuð. Á framlóð er steypt stór innkeyrsla með hitalögnum undir, steypt og flísalögð stétt með hitalögnum undir, trjárgóður og tyrfð flöt. Lóð til suðurs er tyrfð og með trjágróðri. Á baklóð til suðurs og vesturs er stór og skjólsæl viðarverönd með miklum skjólveggjum, heitum potti og föstum blómakerjum.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á skjólsælum og grónum stað á móti suðri þaðan sem stutt er í leikskóla, barnaskóla, verslanir, þjónustu og út á aðalbrautir.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is