Þriðjudagur 3. nóvember
Fasteignaleitin
Skráð 3. nóv. 2026

Bárugata 4

Nýbygging • RaðhúsSuðurland/Þorlákshöfn-815
142.9 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
79.900.000 kr.
Fermetraverð
559.132 kr./m2
Fasteignamat
77.550.000 kr.
Mynd af Hólmar Björn Sigþórsson
Hólmar Björn Sigþórsson
Löggiltur fasteignasali
8933276www.helgafellfasteignasala.isEignalisti
Byggt 2025
Garður
Heitur pottur
Bílskúr
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2532154
Landnúmer
235994
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Nýjar.
Raflagnir
Nýjar.
Frárennslislagnir
Nýjar.
Gluggar / Gler
Nýir.
Þak
Nýtt.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita / Ný.
Inngangur
Sérinngangur
Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölu Bárugötu 4, 815 Þorlákshöfn:

Um er að ræða fallegt og smekklega innréttað 3 herbergja fullbúið miðjuraðhús með innbyggðum bílskúr. Samkvæmt fasteignaskrá er birt stærð 142,9 fm. og þar af er íbúðarhluti 115,2 fm. og bílskúr 27,7 fm.  Eignin selst á byggingarstigi 4 - fullgerð bygging. Húsið er vel staðsett í Vesturbyggð sem er nýtt hverfi í vestur jaðri Þorlákshafnar. Húsið er er klætt að utan með álklæðningu og álþakköntum. 

Eignin skiptist í forstofu, í alrými er eldhús og stofa / borðstofa, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLYFIRLIT STRAX

Nánari lýsing: 
Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með hvítum fataskápum, innangengt er úr forstofu í bílskúr, fallegar flísar á gólfi. 
Eldhús: Í alrými er fallegt eldhús með hvítri innréttingu, eyja með góðum skúffum og borðplötu sem nær út fyrir innréttinguna sem hægt er að sitja við, innbyggður ísskápur með frysti og uppþvottavél, bakarofn í vinnuhæð, spanhelluborð, parket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Í alrými er stór og björt stofa með útgengi út á lóð, gluggar í suður og norður, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott með hvítum fataskápum, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Rúmgott með hvítum fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi: Með fallegri hvítri innréttingu, tvöfaldur vaskur, ljósaspegill, upphengt salerni, walk in sturta með dökku gleri, útgengi út á baklóð, flísar á gólfi og inn í sturtu. 
Þvottahús:  Rúmgott, með góðri hvítri innréttingu, vinnuborð og vaskur, flísar á gólfi. 
Bílskúr: Stærð 27.7 fm., rafmagnstafla og hitastýringar fyrir gólfhita, flekahurð, epoxy á gólfi.
Gólfefni, innréttingar og tæki: Gólf eru klædd með fallegu parketi frá Birgisson og flísar eru frá Álfaborg. Hvítar innhurðir eru frá Birgisson. Innréttingar og tæki eru frá Ikea. 

Lóð: Lóð verður þökulögð og í innkeyrslu og fín möl í bílaplani, sorptunnuskýli verða komin. 
Húsið: Húsið er byggt 2025 og er úr úr timbri og klætt með grárri álklæðningu og hvítum álþakköntum, járn er á þaki. Innfelld lýsing er í flestum rýmum. Gólfhiti er í húsinu og hitastýringar eru í öllum rýmum. Ídráttarrör er komið fyrir heitan pott á baklóð. 

Almennt:
Seljandi greiðir tengigjöld rafmagns og hita sem og lóðargjald. 
Kaupandi greiðir 0,3 % skipulagsgjald þegar það er lagt á við endanlegt brunabótamat.

Kaupendur geta í samráði við eiganda óskað eftir breytingu á skilalýsingu s.s. við val á gólfefnum, innréttingum og annað.

Athugið að meðfylgjandi innimyndir eru úr Bárugötu 2 sem er samskonar eign en endaraðhús. Innréttingar verða hvítar en með sléttum hurðafrontum. 


Hér er um að ræða virkilega fallega og vel staðsetta eign. Þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, sundlaug og íþróttahús og náttúruna. Eign sem vert er að skoða.

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is. 

Þorlákshöfn:
Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.  
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2025
27.7 m2
Fasteignanúmer
2532154
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
04
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.

Myndir (36)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Álftröð 7
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Álftröð 7
Álftröð 7
200 Kópavogur
141,6 m2
Fjölbýlishús
423
1236 þ.kr./m2
175.000.000 kr.
Skoða eignina Álftröð 5
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Álftröð 5
Álftröð 5
200 Kópavogur
139,6 m2
Fjölbýlishús
423
1232 þ.kr./m2
172.000.000 kr.
Skoða eignina Álftröð 5
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Álftröð 5
Álftröð 5
200 Kópavogur
140 m2
Fjölbýlishús
423
1236 þ.kr./m2
173.000.000 kr.
Skoða eignina Fríholt 6
3D Sýn
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Fríholt 6
Fríholt 6
250 Garður
141,6 m2
Raðhús
413
543 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin