Fasteignasalan TORG kynnir: Glæsileg lúxusíbúð með frábæru útsýni í vönduðu lyftuhúsi á besta stað í hjarta Garðabæjar. Um er að ræða 4 herbergja íbúð sem er skráð skv fmr 160,3 fm og þar af er sér geymsla í sameign sem er skráð 9,4fm. Yfirbyggðar suðursvalir og stæði í lokaðri bílageymslu fylgja eigninni. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, borðstofu, sjónvarpskrók, tvö baðherbergi bæði með sturtu og opnanlegum glugga, þvottaherbergi og þrjú svefnherbergi. Allar innréttingar eru samræmdar og gólfefni eru flísar og harðparket. Húsið er staðsett í miðbæ Garðabæjar þar sem öll helsta þjónusta er í göngufæri svo sem Matvöruverslun, heilsugæsla, veitingastaðir, apotek, hágreiðslustofa, verslanir, bókasafn og fl. Einnig er bæði golfvöllur, sundlaug, grunn og leikskóli í innan við 5 mínútna keyrslu. Frábært útsýni er frá eigninni m.a að Esjunni og út á sjó. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is
Nánari lýsing: Forstofa: komið er inn í rúmgóða forstofu með miklum fataskápum sem ná uppí loft, harðparket er á gólfi.
Stofa: Stofan er björt og opin með gluggum frá lofti og niður að gólfi. Útsýnið er einstakt yfir Esjuna og út á sjó.
Borðstofa: samliggjandi stofu er rúmgóð borðstofa sem rúmar vel stórt borð.
Sjónvarpskrókur: í opnu rými með stofu, borðstofu og eldhúsi er góður sjónvarpskrókur og þaðan er gengið út á rúmgóðar yfirbyggðar suðursvalir sem eru með flísum á gólfi og skráðar um 11,7fm.
Eldhús: eldhúsið er vel útbúið með fallegri innréttingu sem nær uppí loft og er með granít á borði. Stór eyja sem hægt er að sitja við. Stækkað span helluborð með háf yfir, ofninn er í vinnuhæð og uppþvottavél er innbyggð. Gólfsíður gluggi setur skemmtilegan svip á eldhúsið með útsýni yfir Esjuna og út að sjó.
Baðherbergi: aðalbaðherbergi er rúmgott með fallegri innréttingu með granít á borði, flísum á gólfi og veggjum að hluta, upphengdu salerni, góðri sturtu og handklæðaofni. Opnanlegur gluggi er á baðherberginu.
Svefnherbergi: herbergin eru þrjú, öll með harðparketi á gólfi og góðum fataskápum. Hjónasvítan er hin glæsilegasta, mjög rúmgóð og með útsýni yfir Esjuna. Stórir fataskápar og innangengt baðherbergi sem er vel útbúið með innréttingu, góðri sturtu og með opnanlegum glugga.
Þvottaherbergi: innan íbúðar er rúmgott þvottaherbergi með flísum á gólfi, innréttingu þar sem vélarnar eru í vinnuhæð, vaski og opnanlegum glugga.
Sameign: í sameign er sérgeymsla sem fylgir eigninni og stæði í lokaðri bílageymslu sem er upphituð og búið að rykbinda og mála gólfin.
Byggingaraðili: ÞG Verk ehf. er lóðarhafi og byggingaraðili hússins. Þ.G. Verktakar hafa áralanga reynslu að framkvæmdum fyrir opinbera aðila, stórfyrirtæki og einstaklinga ásamt því að byggja atvinnu- og íbúðarhúsnæði á eigin vegum.
Niðurlag: Þetta er einstaklega vel skipulögð og falleg íbúð með frábæru útsýni í hjarta Garðabæjar þar sem öll þjónusta er í göngufæri. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is