Fasteignasalan Heimaland kynnir í einkasölu, Boðavík 2, 800 Selfossi, einstaklega snyrtilegt endaraðhús.Um er að ræða fjögurra herbergja raðhús í einu af nýjustu hverfum Selfossbæjar. Húsið er byggt úr timbri og klætt að utan með bárujárni og bárujárn er á þaki. Lóðin er frágengin með rúmgóðum sólpalli, heitum potti og geymsluskúr. Geymsluskúr er tvískiptu annars vegar í kalda óeinangraða geymslu fyrir garðhúsgögn ofl. og hins vegar í rúmgóða einangraða geymslu. búið er að planta trjágróðri í lóðamörkum og er lóðin öll hin snyrtilegasta.
Nánari lýsing eignar:Um er að ræða 111,7 fermetrar íbúð samkvæmt fasteignamati en íbúðin telur samkvæmt teikningu:
Forstofu með flísum á gólfi og fataskáp.
Stofa er rúmgóð og björt með gólfsíðum gluggum.
Borðstofa er rúmgóð einnig en úr borðstofu er rennihurð út á sólpallinn sem snýr á móti suðri.
Eldhúsið er með rúmgóðri snyrtilegri innréttingu með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, span 80 cm. helluborð er í eldhúsi.
Í alrými, stofu borðstofu og eldhúsi er vínyl, vatnsheltparket á gólfi.
Fjögur rúmgóð svefnherbergi eru í húsinu öll með fataskápum og vínyl, vatnsheltparketi á gólfum.
Baðherbergi er flísalagt, gólf og veggir með gólfsturtu, upphengdu salerni, innréttingu og línskáp.
Þvottahús/geymsla er flísalagt með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara.
Hér er um að ræða vel skipulagt enda raðhús, snyrtileg eign í alla staði sem er staðsett í göngufæri við nýjasta grunnskóla bæjarins, Stekkjaskóla.
Til að bóka einkaskoðun og fyrir allar nánari upplýsingar, hafið samband:
Snorri Sigurðarson, löggiltur fasteigna og skipasali, sími 897-7027, snorri@heimaland.isGjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald kaupanda er skv. verðskrá.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Heimaland hvetur því viðskiptavini sína og væntanlega kaupendur af fasteignum að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir tilboðsgerð eða eftir atvikum fyrir kaupsamningsgerð. Ef þurfa þykir ættu væntanlegir kaupendur að leita til þar til bærra sérfræðinga um aðstoð við slíka skoðun.