Domusnova fasteignasala kynnir til sölu einstakt einbýlishús. Mjög vandað og fallegt Sigvaldahús í Suðurhlíðum Kópavogs sem hefur unnið til verðlauna hjá Kópavogsbæ fyrir umhirðu húss og lóðar. Húsið er samtals 245,9m2 og þar af er bílskúr 35,6m2. Húsið stendur á stórri lóð á mjög eftirsóttum stað og er lóðin samtals 955m2. Húsið er staðsett fyrir ofan hinn fallega skrúðgarð Hlíðargarð "Hin falda perla Kópavogs" . Um er að ræða frábæra fjölskyldueign sem hefur verið mikið endurnýjuð að innan á mjög smekklegan hátt og hefur húsinu alltaf verið vel viðhaldið.
***Verið velkomin á opið hús fimmtudaginn 18.júní kl: 17:00-18:00*** **Seljendur hafa áhuga á skiptum á minni eign**
Lýsing eignar: Aðkoman er falleg að húsinu og næg bílastæði. Hellulagt bílaplan sem er upphitað. Snyrtilegt sorpskýli rúmar 3 ruslatunnur. Anddyri: Komið inn í bjart anddyri með fallegum flísum á gólfi. Inn af anddyri er gott fataherbergi fyrir útifatnað. Eldhús: Glæsilegt uppgert eldhús. Falleg sérsmíðuð hvít innrétting með miklu borð- og skápaplássi.Steinplata frá Rein á borðum. Bakarofn í vinnuhæð. Borðstofan og stofan liggja saman í sameiginlegu rými sem tengjast eldhúsinu. Þetta alrými myndar skemmtilega stemmingu í húsinu. Rýmið er mjög bjart og út frá alrýminu er stór rennihurð sem opnast út á stóran palltil suðurs og er með beinu aðgengi út í garð. Gegnheilt eikarparket með fiskbeinamynstri á gólfum ásamt gólfhita. Ljósdeyfir á ljósum. Baðherbergi I: Annað baðherbergið er á efri hæð hússins. Það er flísalagt með baðkari. Upphengt salerni. Gólfhiti. Gluggi er á baðherberginu. Svefnherbergi 1 (efri hæð): Hjónaherbergið er rúmgott með góðum fataskáp. Fallegar rennihurðir með stórum spegli. Parket á gólfi. Svefnherbergi 2 (efri hæð): Rúmgott herbergi með parket á gólfi og útgengt út á litlar svalir með glæsilegu útsýni yfir garðinn. Svefnherbergi 3 (efri hæð): Þetta herbergi er í dag nýtt sem skrifstofa. Herbergið er með skáp. Parket á gólfi. Parket á efri hæð, herbergjum og gangi er gegnheilt parket. Svefnherbergi 4 (neðri hæð): Stórt herbergi með gluggum í tvær áttir. Góður fataskápur og parket á gólfi. Svefnherbergi 5 (neðri hæð): Einnig rúmgott herbergi. Með parket á gólfi. Svefnherbergi 4 og 5 eru hlið við hlið og fyrir framan herbergin er rúmgott opið hol sem gæti nýst sem skrifstofuaðstæða td. Inn af þessu holi er hitt baðherbergi hússins. Baðherbergi II: (neðri hæð): Fallega flísalagt baðherbergi með góðri sturtu. Gluggi á baðherbergi. Gólfhiti. Gengið er niður frá holinu nokkrar tröppur. Komið er niður í rými sem er með góðum skápum. Út frá þessu rými er þvottahúsið, sjötta svefnherbergið og geymsla. Flísar á gólfi. Út frá þessu rými er einnig aðgengi út í garðinn. Svefnherbergi 6: (neðri hæð): Flísar á gólfi. Þetta herbergi hefur einnig verið nýtt sem sjónvarpsrými af eigendum. Þvottahúsið er rúmgott. Það er á neðri hæð hússins. Þvottavél og þurrkari í vinnuhæð. Flísar á gólfi. Opnanlegur gluggi er á þvottahúsinu. Gólfhiti. Geymsla: Á neðri hæð hússins er einnig geymsla. Bílskúr: Stór bílskúrshurð með rafmagnsopnara og hægt að aka inn miðlungsstórum jeppum. Hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl. Yfir bílskúrnum er geymsluloft.Hiti í gólfi. Góðir gluggar. Aðgengi út í garð frá bílskúr. Garðurinn er einstakur og afar skjólsæll. Mikið af fallegum trjágróðri og plöntum. Stór pallur með útgengi frá stofu/eldhúsi og niður í garð. Stórt hellulagt útisvæði sem snýr til suðurs. Árið 2024 var sett upp garðhús í garðinum og frá garðinum er aðgengi að hinum fallega listigarði Hlíðargarði. Útigeymsla: Undir pallinum er stór köld útigeymsla.
Framkvæmdir og Viðhald: *2026:Parket í eldhúsi/stofu/borðstofu pússað og lakkað. *2024: Húsið var málað. *2024: Garðhús um 15m2 sett upp í garðinum. Keypt hjá Lágafelli. *2018: Baðherbergi/salerni neðri hæðar allt endurnýjað. *2015: Eldhús/stofa endurnýjað. Raftæki eru síðan þá að frátaldri uppþvottavél sem er síðan 2022. Sprunga er í steininum vinstra megin við helluborðið. Nokkur ár síðan og hefur hún ekki stækkað. *2015: Baðherbergi á efri hæð allt endurnýjað. *2012: Bílskúr byggður við húsið. *2010: Ný rafmagnstafla sett upp. Þá var bætt við þriggja fasa rafmagni. *2006um það bil var húsið var klætt með múrkerfi frá Weber. Hluti af klæðningunni er 10 sentímetra einangrunarplast sem klæðir allt húsið. Þetta þýðir að húsið er klætt að innan og utan, og sjá mátti lækkun í hitunarkostnaði þegar þetta var gert. *2005 Skipt um flest alla glugga í húsinu. Stóru opnanlegu gluggarnir eru svokallaðir veltigluggar. Keyptir hjá Gluggasmiðjunni. *2004 Skipt um allar raflagnir í húsinu. *Múrhúðin er enn góð, en það þarf að yfirfara og bæta múrinn reglulega. *Skipt hefur verið um lagnir í húsinu. Var það gert á fyrstu árum þess sem núverandi eigendur eignuðust húsið. Skólplagnir voru endurnýjaðar, bæði innan húss og svo alveg að lóðamörkum. Skipt var um gamlar kaldavatns inntak og allar gamlar vatnslagnir innanhúss. Einnig var lagður gólfhiti í hluta hússins og allar gamlar hitavatnslagnir endurnýjaðar. *Gólfhitanumer stýrt í lagnagrind. Hægt er að setja hitastýringu í mismunandi rými án mikillar fyrirhafnar. *Í um helmingi hússins eru ofnar sem voru settir í að fyrri eigenda sem og vatnslagnir í hluta kjallara. Þetta var á tíunda áratug síðustu aldar. *Þak var gert upp af fyrri eigendum. Síðan þá hefur það verið málað og yfirfarið reglulega.
Niðurlag: Hlíðarvegur 6 er afar einstakt og fallegt hús með ríka sögu. Í húsinu var starfrækt Fæðingarheimili Kópavogs snemma á sjöunda áratugnum. Húsið er staðsett í Suðurhlíðum Kópavogs sem er eitt eftirsóttasta og grónasta íbúðarhverfi Kópavogs. Hverfið er þekkt fyrir mikið útsýni og einstaklega góð veðurskilyrði. Húsið var byggt í áföngum, fyrsti hluti þess var byggður árið 1954 og miðhluti hússins nokkrum árum síðar. Bílskúrinn var svo byggður af núverandi eigendum árið 2012. Húsið var teiknað af Sigvalda Thordarsyni arkitekt. Húsið stendur á einstökum stað fyrir ofan hina földu perlu, Hlíðargarð. Stórt og skemmtilega skipulagt hús með allt að 6 svefnherbergjum. Um er að ræða einstaklega glæsilega fjölskyldueign á eftirsóttum stað.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.