Lind fasteignasala ehf kynnir eignina Grensásvegur 3, 108 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 02-01, fastanúmer 202-3301 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Grensásvegur 3 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 202-3301, birt stærð 501.5 fm.
Skrifstofuhæð miðsvæðis í borginni. Endahúsnæði með glugga í þrjár áttir með útsýni.
Hæðin skiptist, í dag í þrjú skrifstofurými sem eru 283,1 fm., 148,3 fm. og 25,9 fm. skv. teikningu. Mögulegt er að opna á milli stærri rýmana og breyta skipulaginu því burður er í súlum.
Hluti 1. Skrifstofa um 25,9 fm.
Hluti 2. Skrifstofuhúsnæði samtals um 143 fm.en búið er að stúka hluta af húsnæðinu sem fylgir í dag hluta 3 en mjög einfalt að breyta því aftur. Í dag eru tvær lokaðar skrifstofur, eldhús og fundarherbergi og opið rými fyrir 5 starfsstöðvar. Húsnæðið er laust í dag.
Hluti 3. Skrifstofuhúsnæði samtals um 283 fm. Í dag er mótttaka, opið rými fyrir starfsstöðvar, 5 lokaðar skrifstofur, 1 stór skrifstofa með aðstöðu fyrir allt að 4 starfsstöðvar, 2 fundarherbergi, setustofa og eldhús með mjög góðri aðstöðu. Húsnæðið er laust frá 1. september 2026
Sameiginlegt móttökurými 45,8 fm., snyrtingar, geymsla og ræstikompa fyrir alla þrjá hlutana á hæðinni. Sameiginleg geymsla í kjallara.
Húsnæðið var endurnýjuð 2016. Endurinnréttuð og skipt úr einni í þrjár minni einingar. Rafmagn, rafmagnstöflur, tölvulagnir, loftakerfi voru endurnýjuð, loftræstikerfi sett upp, lýsing og brunavarnakerfi. Gler að mestu 2010. Þak yfirfarið á sama tíma og stór hluti hússins var klæddur 2010.
Bílastæði eru á lóð fyrir framan og aftan húsið og við húsgaflinn.
Í dag er ekki lyfta í húsinu en stigaop er rúmgott og auðvelt væri að koma fyrir lyftu í húsinu.
Eignin er hluti af byggingarrétti lóðarhafa Grensásvegi 3-5-7.
Nánari upplýsingar veitir Viðar Marinósson Löggiltur fasteignasali, í síma 898-4477, tölvupóstur vidar@fastlind.is.
-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.