VALBORG fasteignasala kynnir í einkasölu einbýlishús ( Ásar ) við Hveramörk 16, 810 Hveragerði.
Mikið endurnýjuð eign á rólegum og skjólgóðum stað, misvæðis í Hveragerði.
Þrjú svefnherbergi, stofa, nýlegt eldhús, nýlegt baðherbergi, þvottahús, geymsla og hellulagt bílaplan.
Eignin er samtals 130,3m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Efri hæðin er 82,8m² og neðri um 47,5m²Sjá staðsetningu hér:Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is. Efri hæð:Forstofa: parket á gólfi, fatahengi.
Þrjú svefnherbergi: tvö rúmgóð svefnherbergi með parketi á gólfi.
Þriðja herbergið er inn af stofu. Parket á gólfi.
Eldhús: nýleg eldhúsinnrétting, hvít með viðar borðplötu. Gott skápapláss, háfur yfir eldavél.
Gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu.
Stofa: nýjar loftaplötur í stofu, parket á gólfi.
Baðherbergi: nýlegt, innrétting með handlaug, skúffu og skápapláss og "walk-in" sturta
Þvottahús: er á neðri hæð hússins. Þar eru tvö herbergi. Annað er með plássi fyrir þvottavél og þurkara, borðplata með skolvask.
Inn af því er rúmgott geymsluherbergi.
Á neðri hæðinni er aðgengi að lögnum hússins og þar er
nýleg lagnagrind.Gólfhiti var lagður í alrými efri hæðar með stýringum í hverju rými.
Þá er einnig nýlegt parket á efri hæðinni.
Skipt hefur verið um alla rafmagnstengla í húsinu og rafmagn yfirfarið.
Nýlegt gler í gluggum.
Drenað hefur verið í kringum eignina.
Nýlegt járn á þaki.
Bílaplan er hellulagt fyrir tvo bíla.
Um er að ræða eitt af elstu húsum bæjarins, timburhús á steyptum grunni, staðsett á rólegum stað við hverasvæðið í miðbænum.
Grunnskóli og sundlaug í 5 mín göngufjarlægð.
Heilsugæsla bæjarins er í 1 mín göngufjarlæð og mjög stutt er í verslun og þjónustu.
Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is. Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.