Fasteignasala Suðurlands kynnir: Hnjúkamói 9, íbúð 0201, Þorlákshöfn. Ný, 74,7m2 íbúð með 2 stórum svefnherbergjum, á 2.hæð í uppsteyptu fjölbýlishúsi auk 6,2m2 sér geymslu og svölum sem snúa í hásuður.
Húsið er fyrsti áfangi svonefnds miðbæjarverkefnis sem verður allt hið glæsilegasta og er staðsett örstutt frá allri helstu þjónustu.
ÍBÚÐIN GETUR FALLIÐ UNDIR HLUTDEILDARLÁN og verður tilbúin til afhendingar í ágúst/september 2026.
** Hægt er að bóka einkaskoðun og fá allar nánari upplýsingar á fastsud@gmail.com og í síma 483 3424 **
Eignin skiptist svo:
* Anddyri með fataskáp. Hurðir, úthliðar og sökklar skáps eru hvítar að lit.
* 2 góð svefnherbergi, bæði með fataskápum. Hurðir, úthliðar og sökklar fataskápa eru hvítar að lit. Stærðir skápa eru skv. teikningum.
* Rúmgott eldhús og stofu í opnu rými.
* Utangengt er úr stofunni á svalir sem snúa í hásuður
* Eldhúsið er með fallegri innréttingu frá Arens (söluaðili, Ormsson). Hurðir og forstykki eru hvít. Borðplötur eru plastlagðar í ljós gráum lit. Eldhúsraftæki eru frá AEG. Ísskápur og uppþvottavél verða innbyggð. Blöndunartæki eru frá Grohe.
* Baðherbergi með fallegri innréttingu frá Arens. Innrétting á baðherbergi afhendist með speglum, skápar eru í hvítum lit, borðplötur eru harðplast. Sturta er með sturtugleri. Blöndunartæki á baði eru frá Grohe. Vegghengt salerni frá Laufen. Sturta með hitastýrðum blöndunartækjum ásamt sturtustöng með haus og handúðara
Flísalögn á baði mun ná upp í loft á tvo veggi og gólf verður flísalagt.
* Þvottahús með flísum á gólfi.
* Sér geymsla er í kjallara hússins. Bæði stigi og lyfta eru í kjallarann.
* Allar hurðir eru hvítar og yfirfelldar. Hurðar innan íbúðar verða án þröskulda.
* Öll gólf nema á baðherbergi og þvottahúsi eru lögð vönduðu Quick step harðparketi frá Harðviðarval.
* Allar innréttingar eru frá Arens, (söluaðili er Ormsson ehf.) og eru í stöðluðum stærðum, skv. innréttingateikningum.
* Ljós (kúplar) eru á baðherbergi, í þvottahúsi og í eldhúsi. Sjónvarps- og nettenglar í herbergjum.
* Dyrasímar skv. teikningum, myndavélasími verður í íbúðinni.
* Stór sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í húsinu. Gólf í sameiginlegri geymslu og sér-geymslum verður lakkað.
* Gólf í stigahúsi eru teppalögð.
Lóð:
* Lóðarfrágangur verður í megindráttum skv. teikningum landslagsarkitekta.
* Snjóbræðsla á göngustígum samkvæmt teikningu.
* Bílastæði verða malbikuð og afmörkuð með máluðum línum.
* Gert verður ráð fyrir að hægt verði að setja hleðslustöðvar við húsið, lagnaleið fyrir hendi.
* Á myndum í auglýsingu má sjá hugmynd að miðbæjarskipulaginu. Hnjúkamói 9 er hús merkt A2 á teikningu **
3-d myndir af íbúð í auglýsingu eru til glöggvunar á útliti innréttinga en ekki skipulagi.
FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !
Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.
Heimasíða fasteignasölunnar: https://www.eignin.is/
Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar:
Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna:
KRÓNU VERSLUN
Apótekarann.
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Super 1 pizza (facebook: super 1 pizza)
Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi.
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni.
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.
** Allar helstu fréttir úr sveitafélaginu má finna á www.hafnarfrettir.is og á www.hamingjuhofn.is