Betri stofan fasteignasala og Dagrún Davíðsdóttir löggiltur fasteignasali kynna Rögguberg 3, 0,88 hektara land til sölu.
Deiliskipulag fyrir svæðið er komið. Um það bil 1 klst. akstur frá höfuðborgarsvæðinu.
Í framhaldi af jörðinni er stórt landsvæði sem eingöngu er nýtt til beitingar fyrir hesta. Þá má nefna að fallegar hestaslóðir eru allt í kring og því kjörið tækifæri fyrir hestaáhugamenn.
Allar nánari upplýsingar í síma 866 1763 eða á dagrun@betristofan.isNánari lýsing:Um er að ræða um 0,88 hektara land sem stendur á milli Tungufljóts og Hvítár. Rögguberg er í landi Bergstaða. Nýleg hitaveita er á staðnum sem hægt er að kaupa sér aðgang að. Stutt er í þjónustu, golf og aðra afþreyingu á svæðinu. Þar má nefna Gullfoss og Geysi.
Töluverð skógrækt hefur verið stunduð þarna í gegnum tíðina og því myndarlegur skógur orðinn vel sýnilegur.
Lóðin býður upp á einstakt útsýni yfir Bjarnafell, Langjökul og sjá má glitta í Strokk þegar vel viðrar. Náttúrufegurð sem býður upp á síbreytilegt og heillandi landslag en staðurinn er í skjóli fyrir þá sem leita fegurðar og ró í faðmi nátturúnnar.
Eignin Rögguberg 3 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 253-1534, birt stærð 8758,7 fm2.
Nánari upplýsingar veitir Dagrún Davíðsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8661763, tölvupóstur dagrun@betristofan.is-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.