Þriðjudagur 10. mars
Fasteignaleitin
Skráð 12. maí 2024

Hraunhvammar 4

Jörð/LóðSuðurland/Selfoss-805
Verð
15.000.000 kr.
Fasteignamat
4.310.000 kr.
Fasteignanúmer
2343771
Landnúmer
197476
Húsgerð
Jörð/Lóð
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Lóð
100
Domusnova og Soffía Sóley lögg.fasteignasali kynna:  Eignarlóðina Hraunhvammar 4, Grímsnes- og Grafningshreppi.  ÚTSÝNISLÓР HITAVEITA

Hraunhvammar er skemmtilegt sumarhúsasvæði á vinsælum stað í skipulögðu sumarbústaðarhverfi í landi Ásgarðs í Grímsnes- og Grafningshreppi.

Hraunhvammur 4 er 8.190 fermetra eignalóð í Grímsnesi, rétt fyrir ofan Álftavatn við Ásgarðslæk, Ásgarðs í Grímsnesi.
Akstur frá Reykjavík ca. 50 mínútur og Selfoss 15 mínútur.
Stutt er í alla þjónustu og afþreyingu, m.a. golfvöll, veiði, sund og fleira.   Auk þess er stutt í allar helstu náttúruperlur Suðurlands og þekktra staða:  Skálholts, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss og Kersins

Lóðin er gróin og stendur hátt og þaðan er frábært útsýni til allra átta.

Heimilt er að byggja eitt hús ásamt útihúsi (geymslu/ gestahús/ gróðurhús) á lóðinni innan byggingarreits.  Möguleiki að tengjast hitaveitu.
Lokað svæði (rafmagnshlið), svæðið er afgirt með einni heildargirðingu. 
Ársgjald í félag sumarhúsaeiganda á svæðinu er um kr. 20.000 á ári.

Teikning af ca. 60 fm bústað auk svefnlofts getur fylgt (allt nema rafmagnsteikningar) 

Rafmagn, heitt og kalt vatn við lóðarmörk.

Nánari upplýsingar veitir:
Soffía Sóley Magnúsdóttir löggiltur fasteignasali soffia@domusnova.is  / sími 846-4144

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
DN ehf
domusnova.is

Myndir (9)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Grjóteyri Kjós 0
Grjóteyri Kjós 0
276 Mosfellsbær
440,502.6 m2
Jörð/Lóð
5
1 þ.kr./m2
345.000.000 kr.
Skoða eignina Brókarstígur 29
Brókarstígur 29
311 Borgarnes
Jörð/Lóð
5.900.000 kr.
Skoða eignina B-Tröð 1
Skoða eignina B-Tröð 1
B-tröð 1
110 Reykjavík
43 m2
Hesthús
1
300 þ.kr./m2
12.900.000 kr.
Skoða eignina Hoftún
Skoða eignina Hoftún
Hoftún
801 Selfoss
582,000 m2
Jörð/Lóð
0 þ.kr./m2
55.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin