Björt og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í fjögurra íbúða stigagangi við Ásvallagötu 55 á eftirsóttum stað í gamla Vesturbæ Reykjavíkur. Nálægt allri helstu þjónustu og í göngufjarlægð við iðandi mannlíf miðborgarinnar.
** Frábær fyrstu kaup
** Góð staðsetning
** Gott viðhald á húsi
Nánari upplýsingar veita:Hrafnkell Pálmarsson Lgf / MBA. í síma nr 660-1976 eða hrafnkell@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð skv. HMS er 57m2, þar af geymslur 4,1m2 og 8,8m2.
Eignin skipist í anddyri, stofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og tvær geymslur.
Nánari lýsing:
Anddyri er með parket á gólfi.
Svefnherbergi er rúmgott með fataskáp. Parket á gólfi.
Stofa er rúmgóð og björt með parket á gólfi.
Eldhús er með sjarmerandi eldri innréttingu, helluborði og ísskáp sem fylgir með kaupum.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað á smekklegan hátt með hvítri innréttingu, handlaug, vegghengdu salerni, handklæðaofni og sturtuklefa. Flísar á gólfi og hluta veggja.
Geymslur eru tvær sem fylgja eigninni í kjallara, önnur er 4,1m2 og hin er 8,8m2.
Sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi er í kjallara hússins og getur þvottavél fylgt með kaupunum.
Athygli er vakin á því að nokkrar myndir hafa verið sviðsettar með tölvutækni þar sem eignin er tóm til þess að hugmyndir um nýtingu eignarinnar.
Ásvallagata 55, íbúð merkt 0201, er falleg og vel skipulögð eign í sögufrægu húsi á eftirsóttum stað í gamla Vesturbæ Reykjavíkur. Eignin er hluti af stærri íbúðakjarna sem afmarkast af Ásvallagötu, Hofsvallagötu, Hringbraut og Bræðraborgarstíg.
Húsalengjan er teiknuð af Guðjóni Samúelssyni arkitekt. Húsalengjan myndar hring utan um skjólgóðan og fallegan garð með leiktækjum, bekkjum og fallegum gróðri. Reykjavíkurborg sér um að halda garðinum við og er garðurinn öllum opinn á daginn, en á kvöldin er hliði í undirgöngum læst og garðurinn er þá eingöngu fyrir íbúa í húsalengjunni. Öflugt húsfélag er starfandi í húsalengjunni sem sinnir viðhaldi á húsinu vel.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.