Mánudagur 16. september
Fasteignaleitin
Skráð 9. sept. 2024
Deila eign
Deila

Sólvallagata 79

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
94.5 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
94.800.000 kr.
Fermetraverð
1.003.175 kr./m2
Fasteignamat
8.020.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2024
Lyfta
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2527328
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
20
Vatnslagnir
Nýbygging
Raflagnir
Nýbygging
Frárennslislagnir
Nýbygging
Gluggar / Gler
Nýbygging
Þak
Nýbygging
Svalir
Svalir/Verönd
Upphitun
Hefðbundið ofnakerfi
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
3 - Risin bygging
Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir í einkasölu: 

Nýjan og glæsilegan íbúðarkjarna á gamla Steindórsreitnum í 101 Reykjavík (Grandatorg.is) sem skartar þremur flottum byggingum við Sólvallagötu með alls 84 íbúðum.
 
Íbúðirnar umlykja flestar fallegan inngarð þar sem líf og samfélag rennur saman og skapar nánd milli íbúa. Í hverju skrefi var hugað að þægindum, notagildi og stíl sem fellur vel að umhverfi við Sjávarsíðuna.

Nánar um eign 01-0120 á Sólvallagötu 79: Eignin er fjögurra herbergja herbergja íbúð á 1. hæð  merkt  01-0120, birt stærð 88,1 fm. Eigninni tilheyrir geymsla í kjallara merkt 0048 birt stærð 6,4 fm. Eigninni tilheyrir svalir/verönd merkt 0141. Birt heildarstærð séreignar er 94,5 fm. 
 
Bókaðu skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 eða með tölvupósti á netfangið gulli@remax.is

Allar íbúðir í húsinu eru tilbúnar til afhendingar við kaupsamning.
Að undanskildum níu íbúðum á 1. hæð ( jarðhæð ) í bogadregnahúsinu, þær íbúðir verða tilbúnar til afhendingar frá og með 1. október nk. Þær fjórar íbúðir sem eru í stakstæðu húsunum tveim, þær íbúðir verða tilbúnar til afhendingar frá og með 1. nóvember nk.
Bílageymsla verður tilbúin til notkunar í október 2024

Sjá má skilalýsingu, verðlista á íbúðum og verðlista á bílastæðum ( til kaups eða leigu ) og nánari upplýsingar um húsið inn á heimasíðu verkefnisins: Grandatorg.is
 
Margar íbúðir með fallegt og gott útsýni til sjávar- og fjalla.
Fjölbreytt val um íbúðir. Allt frá studió íbúðum yfir í fjögurra herbergja íbúðir.
Stærðir eru frá 49,4 fm. – 157,1 fm.
Verð eru frá kr. 59.000.000 kr.
 
Allar innréttingar eru sérsmíðaðar hjá Gerher í Litháen sem er þjónustað af HBH Byggir ehf. Um er að ræða vandaða framleiðslu úr melamin efni frá Egger sem er sérstaklega endingagott og slitsterkt. Votrými eru flísalögð. Hurðir eru frá Harðviðarval. Allar íbúðir eru allar afhendar án gólfefna að undaskildum votrýmum, þ.e. inn á baðherbergi og inn í þvottahúsi þar sem það á við. Þar verða 60 x 60 flísar. Flestar íbúðir í kjarnanum eru með borðplötur frá Gerher.

Eftirfarandi íbúðir í kjarnanum skilast með Quarts borðplötum. Íbúðir nr. 201, 301, 310, 315, 316, 317, 318, 319, 401, 408, 409, 410, 411, 412, 413, 506 og 507. Nánari upplýsingar í skilalýsingu.

Nánar um húsið, möguleika á bílastæðum og hverjir standa að verkinu.

Bílakjallari / Eigendur á Grandatorgi hafa möguleika á að kaupa bílastæði eða leigja gegn sanngjörnu gjaldi.  

Það eru samtals 86. bílastæði í bílakjallara sem verða seld eða leigð eftir vali kaupanda, eitt eða fleiri eftir þörfum viðkomandi, 8. af þeim stæðum eru með aukageymslu fyrir framan. Í þeim tilvikum verða bílastæðið og geymslan seld saman.

Verð á bílastæðum til kaups er sem hér segir:
Hefðbundið bílastæði, kr. 8,0 m.
Stæði með aukinni breidd, kr. 10,0 m.
Stæði með minni geymslu fyrir framan, stæði og geymsla, verð samtals kr. 13,0 m. (2 slík til).
Stæði með stærri geymslu fyrir framan, stæði og geymsla, verð samtals kr. 15,0 m. (5 slík til).
Svo er eitt sérstakt stæði. Merkt B14. Þessu stæði fylgja tvær geymslur og aukarými. Verð samtals kr. 24,0 m.

Markmiðið með vali um kaup eða leigu á bílastæði er til að stuðla að réttlátri úthlutun bílastæða.
Nánari upplýsingar um áskriftakerfið má finna í verðskrá og reglum bílastæðahússins inn á grandatorg.is

Atvinnurýmin í bogadregna húsinu á Sólvallagötu 79 sem liggur við Hringbraut verða tilbúin til afhendingar frá og með 15. september 2024.


Hitakerfi:
Íbúðir í bogadregna húsinu sem liggur við Hringbraut eru upphitaðar með gólfhitakerfi. Aðrar íbúðir við Sólvallagötu 79 eru upphitaðar með hefðbundnum miðstöðvarofnum.
 
Gluggar:
Álklæddir timburgluggar frá Kömbum. Tvöfalt einangrunargler í gluggum.
 
Lóð afhendist fullfrágengin. Hitalögn verður í helstu gönguleiðum, þ.e. stígur milli Hringbrautar og Sólvallagötu við lóðir Framnesvegar, og meðfram Hringbrautarhúsinu í inngarð. Grassvæði verða frágengin og gróðurbeð grófjöfnuð, gróður fylgir ekki með skv. lóðarteikningu. Á leiksvæði barna verður hægt að setja upp leiktæki. Helstu gönguleiðir og aðgengi að anddyrum snjóbræddar.
 
Að verkinu standa eftirtaldir aðilar:
Byggingaraðili er Reir Verk ehf. sem er öflugt byggingarfélag sem vinnur að fjölbreyttum fasteignaverkefnum ásamt því að vinna að ýmsum byggingaverkefnum á eigin vegum. Fyrirtækið leggur áherslu á að veita heildarlausnir í byggingaverkefnum, góða þjónustu og vandaða vöru.
 
Arktitekt og aðalhönnuður er  +Arkitektar
Burðarþol, Verkfræðistofa Þráinn & Benedikt ehf.
Lagnir, Verkfræðistofa Þráinn & Benedikt ehf.
Raflagnir, Voltorka
Seljandi, Steindór ehf.
 
Til áréttingar:
Upplýst er um að lóðin verður byggingasvæði í einhvern tíma eftir að eignir eru afhendar og að lokaúttekt getur tafist þar til lóðin og öll mannvirki innan lóðar eru fullkláruð. Seljandi mun ábyrgjast lokaúttekt á eigninni en afsal kann að fara fram áður en lokaúttekt á eigninni/heildareigninni fæst.
 
Nánari upplýsingar veitir: Guðlaugur J. Guðlaugsson/Gulli löggiltur fasteignasali í síma 661-6056 / gulli@remax.
 
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.  Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef um lögaðila er að ræða) af heildar fasteignamati.
2.  Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3.  Lántökugjald lánastofnunar -  Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-
 
 
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Barónsstígur 25
Barónsstígur 25
101 Reykjavík
113.6 m2
Fjölbýlishús
42
835 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Framnesvegur 16
Skoða eignina Framnesvegur 16
Framnesvegur 16
101 Reykjavík
99.3 m2
Fjölbýlishús
523
976 þ.kr./m2
96.900.000 kr.
Skoða eignina Vesturvin V2 íb 306
Bílastæði
Vesturvin V2 íb 306
101 Reykjavík
92.8 m2
Fjölbýlishús
312
1061 þ.kr./m2
98.500.000 kr.
Skoða eignina Tryggvagata 4-6
3D Sýn
Skoða eignina Tryggvagata 4-6
Tryggvagata 4-6
101 Reykjavík
112.2 m2
Fjölbýlishús
422
881 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin