VALBORG fasteignasala kynnir: Heildarhúseignin við Kársnesbraut 92, 200 Kópavogi. Um er að ræða einbýlishús sem er neðri hæð, hæð og bílskúr. Tveir inngangar eru í húsið. Húsið er klætt og einangrað að utan. Heildareignin er skráð samtals 264 fm.
Fasteignamat 2026 verður 164.800.000,-.
Nánari upplýsingar veitir Borga Harðardóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 821 2412, tölvupóstur borga@valborgfs.is
Eignin Kársnesbraut 92 er skráð sem hér segir hjá HMS:
Neðri hæð, birt stærð 91 fm.
Hæð, birt stærð 132 fm.
Bílskúr, birt stærð 41 fm.
Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Forstofa með parketgólfi.
Baðherbergi er með flísalagt gólf og flísar upp á vegg, frítt standandi baðkar, aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Inn af baðherbergi er hitakompa.
Eldhús er opið, innrétting, flísar á gólfi.
Borðstofa, útgengt á pall og þaðan út í garð. Á gólfi er sisal teppi.
Herbergi, rúmgott með parketgólfi.
Stigi í holi á milli hæða, sisal teppi á gólfi/þrepum.
Efri hæð:
Forstofa með parket á gólfi.
Stofa stór og björt með útsýni á tvo vegu. Parket á gólfi.
Herbergi I, flísar á gólfi.
Herbergi II, með fataskápum. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi, rúmgott, parket á gólfi.
Fataherbergi, rúmgott, parket á gólfi. Mögulegt að breyta í herbergi.
Baðherbergi, er með flísalagt gólf, veggi og loft, baðkar og blöndunartæki fyrir sturtu.
Bílskúr, 41 fm. Rafdrifin bílskúrshurð. Gluggar á tvo vegu. Bílskúrinn hefur verið nýttur sem íbúðarhluti. Gólf lakkað.
Lóð er tyrft og með töluverðum trjágróðri. Stærð lóðar 902 fm.
Að sögn seljanda var þak endurnýjað sumarið 2025.
Staðsetning eignarinnar er á grónum og eftirsóttum stað í vesturbæ Kópavogar.
Mögulegt að nýta eignina sem tvær íbúðir.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.