** Opið hús miðvikudaginn 8. apríl frá kl. 16:30 til 17:00 - Lómasalir 6, íbúð 301 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 ** Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg, björt og vel skipulögð 122,1 m2, 4ra herbergja endaíbúð með fallegu útsýni á 3.hæð í lyftuhúsi ásamt stæði í lokaðri bílageymslu við Lómasali 6 í Kópavogi. Eignin er skráð 122,1 m2 þar af íbúð 113,4 m2 og geymsla 8,7 m2. Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, forstofu, gang, eldhús, stofu og borðstofu. Sérgeymsla í sameign á jarðhæð. Sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu. Svalir í suðvesturátt með fallegu útsýni.
Eignin er staðsett í fjölskylduvænu og eftirsóttu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Í nágrenninu eru grunnskóli, leikskóli, sundlaug, íþróttasvæði og fallegar gönguleiðir við náttúrusvæði.Endurbætur samkvæmt seljanda: Á síðustu 2-4 árum var baðherbergið endurnýjað, sett nýtt parket á íbúðina og settir nýjir frontar á eldhúsinnréttingu og fataskápa í hjónaherbergi.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent straxNánari lýsing:Forstofa er rúmgóð með flísum á gólfi og stórum fataskápum.
Gangur er með parketi á gólfi.
Stofa og borðstofa eru saman í rúmgóðu opnu rými með parketi á gólfi. Úr rýminu er gengið út á stórar svalir í suðvesturátt með fallegu útsýni.
Eldhús er með L-laga innréttingu. Í innréttingu er innbyggð uppþvottavél, bakaraofn, helluborð og háfur. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu. Opið er inn í eldhúsið úr borstofu og af gangi.
Svefnherberg nr. 1 (hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherberg nr. 2 er með parketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi nr. 3 er með parketi á gólfi og fatahengi ásamt skúffum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Vegghengt salerni, handklæðaofn, innrétting og sturta. Innbyggð tæki eru í sturtu.
Þvottahús er með vinnuborði og skápum, flísar á gólfi.
Sérgeymsla með hillum er í sameign á jarðhæð. Er skráð 8,7 m2.
Sameiginleg
hjóla- og vagnageymsla og dekkjageymsla er á jarðhæð hússins.
Bílastæði í bílageymslu með aðgengi frá lyftu - stigahúsi. Sérmerkt stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni.
Leikvöllur fyrir börn er í garðinum með rólum og rennibraut.
Verð kr. 94.900.000,-