VALBORG fasteignasala kynnir í einkasölu íbúð á fyrstu hæð við Aldinmörk 12, 810 Hveragerði.
Íbúðin er nýleg, þriggja herbergja á fyrstu hæð með sérinngangi.
Geymsla er innan íbúðar.
Eignin er samtals 69,2 m² m2 að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Íbúðin telur forstofu, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús/geymslu.
Falleg íbúð í sex íbúða, tveggja hæða fjölbýlishúsi á góðum stað.
Húsið er byggt árið 2021.
Lýsing eignar:
Forstofa: komið er inn í flísalagða forstofu, þar er fataskápur.
Stofa: eldhús og stofa eru saman í opnu rými. Frá stofu er útgengt út á hellulagða verönd er snýr í suður.
Eldhús: er opið inní stofu. Þar eru efri og neðri skápar, bakarofn og spanhelluborð. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu.
Baðherbergi: þar er innrétting með handlaug og gott skúffupláss, speglaskápur, upphengt wc og "walk-in sturta". Þer er tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Baðherbergið er flísalagt og þar er gólfhiti.
Geymsla: flísalögð geymsla og þar er gluggi.
Svefnherbergin eru tvö.
Hjónaherbergi: með ágætu skápaplássi, parket á gólfi.
Svefnherbergi: einfaldur fataskápur og parket á gólfi.
Gólfefni íbúðar eru flísar og parket.
Eignin er á svokölluðum Edenreit, miðsvæðis í Hveragerði.
Lóð og bílstæði frágengin og snyrtileg.
Stutt í skóla, verslun og þjónustu.
Miðsvæðis er leiksvæði og sælureitur.
Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.