ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu virkilega vandaða og smekklega 75 fm, 4ra herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngang og með sólpalli sem snýr í suður í tvíbýlishúsi við Aldinmörk 4 í Hveragerði. Íbúðin er staðsett í hjarta Hveragerðis á svokölluðum EdenreitNánari upplýsingar veita:Helgi Bjartur Þorvarðarson
Löggiltur fasteignasali/lögfræðingur
helgi@allt.is
770-2023
Páll Þorbjörnsson
löggiltur fasteignasali
pall@allt.is
560-5501 Nánari lýsing eignar:Anddyri með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Alrými með stofu og eldhúsi. Útgengt er frá stofu út á
skjólgóða timburverönd er snýr til suðurs.
Eldhús er með nýlegri innréttingu. Spanhelluborð, vifta og bakarofn í vinnuhæð. Innbyggður ísskápur með frysti og innbyggð uppþvottavél fylgir með íbúðinni.
Baðherbergi er flísalagt. Sturta er flísalögð, vegghengt salerni, vaskaskápur og speglaskápur.
Á baðherberginu er gert ráð fyrir þvottavél og þurkara.Hjónaherbergi er með parketi á gólfi og með góðum fataskáp fataskáp.
Svefnherbergi I er með parketi á gólfi og með fataskáp.
Svefnherbergi II er parketi á gólfi og með einföldum fataskáp.
Innan íbúðar er góður tvöfaldur fata/geymsluskápur.
Lóð og bílstæði frágengin og snyrtileg.
Stutt í skóla, verslun og þjónustu.
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.