Mjög falleg 4ra herb. íbúð á 5. hæð efstu hæð í lyftuhúsi við Vallakór í Kópavogi með rúmlega 25 fm. yfirbyggðum svölum. Sérbílastæði í sameiginlegu bílastæðahúsi þar sem búið er að leggja rafmagn að hverju stæði. Mjög barnvænt hverfi þar sem örstutt er í leikskóla, skóla og íþróttaaðstöðu og verslun. Íbúðin er skráð 116,4 fm og geymsla 8,6 fm. = 125 fm. 25 fm svalir eru ekki skráðar inn í fermetra. Eignin getur losnað MJÖG FLJÓTLEGA. Nánari lýsingu má fá hjá fasteigansala. Halldór Freyr Sveinbjörnsson - 6932916 - halldor@fastgardur.isEignin skiptist í: Forstofu,hol, baðherbergi, 3 svefnherbergi, stofu/borðstofu og eldhús í opnu rúmi, þvottahús, geymslu og bílastæði.
Gólfefni og innréttingar: Fljótandi parket á öllum gólfum nema forstofu, þvottahúsi og baðherbergi. Innréttingar, eru frá Brunás.
Forstofa: flísalögð með góðum fataskáp.
Baðherbergi: flísalagt í hólf og gólf, með baðkari, sturtuklefa og fallegri innréttingu.
Eldhús: l-laga hvít innrétting, kvarts steinn á borðum, gler á milli skápa og fyrir ofan helluborð.
Stofa/borðstofa: er opið rými með eldhúsi. Parket á gólfum og útgegni á 25. fm. yfirbyggðar flísalagðar svalir með miklu útsýni.
Hjónaherbergi: rúmgott, parketlagt, innangengt í fataherbergi með góðri innréttingu.
Svefnherbergi1: mjög rúmgott, parketlagt, með skápum.
Svefnherbergi 2: parketlagt og með fataskáp.
Þvottahús: er flísalagt með góðri innréttingu.
Sérgeymsla í sameign ásamt hjólageymslu og vagnageymslu.
Sérbílastæði í bílastæðahúsi þar sem búið er að leggja lagnir að fyrir hleðslustöð. Að auki eru dekkja, vagna- og hjólageymslur í sameign.
Virkilega björt og falleg eign þar sem stutt er í þjónustu og skóla.