Helgafell fasteignasala og Linda Björk Ingvadóttir löggiltur fasteignasali kynna bjarta og fallega 4ra herbergja íbúð á annarri hæð við Vindakór 5-7 í Kópavogi. Stæði í bílageymslu fylgir með.
** Bókið skoðun hjá Lindu í s. 8687048 **Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.
Nánari lýsing:Forstofa með góðum fataskáp og flísum á gólfi.
Eldhús með eldhúseyju, ofn í vinnuhæð, tengi fyrir uppþvottavél og parketi á gólfi. Opið rými milli eldhúss og stofu.
Stofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Útgengi á flísalagðar suður svalir.
Hjónaherbergi er með góðum fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi með baðkari, sturtu, handklæðaofni, upphengdu salerni, flísum í hólf og gólf.
Þvottahús er með innréttingu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, flísar á gólfi.
Geymsla er 13,8 fm í kjallaranum ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Stæði í bílageymslu fylgir, hleðslustæði til staðar.
Falleg eign á góðum stað í Kópavogi. Stutt er í alla helstu þjónustu, skóli og leikskóli í göngufæri. Einnig eru margar fallegar gönguleiðir í kring. Smelltu hér til að fá sent söluyfirlit straxFyrir nánari upplýsingar hafið samband við:Linda Björk Ingvadóttir löggiltur fasteignasali
s. 868 7048 / linda@helgafellfasteignasala.is