Fimmtudagur 8. október
Fasteignaleitin
Skráð 12. nóv. 2025

Sunnubraut 46

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
335.6 m2
6 Herb.
3 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
197.750.000 kr.
Brunabótamat
144.500.000 kr.
JG
Jason Guðmundsson
hdl og lgf kt 250470-5929 jason@miklaborgis
Byggt 1965
Garður
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2065497
Landnúmer
116145
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer íbúðar
010101
Vatnslagnir
Sjá upplýsingablað seljanda
Raflagnir
Endurnýjaðar
Svalir
1
Lóð
100.00
Upphitun
Gólfhiti/Ofnakerfi
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging

Miklaborg og Bára Gunnlaugsdóttir fasteignasali kynna Sunnubraut 46 í Kópavogi – einstakt heimili sem kemur afar sjaldan á markað.

Húsið stendur hátt á fallegri hornlóð og býður upp á glæsilegt útsýni. Það var teiknað af Guðmundi Þór Pálssyni, einum áhrifamesta arkitekt sjöunda áratugarins, sem lét eftir sig fjölda opinberra bygginga og merkilegra einbýlishúsa.

Sunnubraut 46 ber greinileg einkenni hans, skörp form, háir skjólveggir, stórir gluggar og birta sem flæðir fallega um rýmið. Húsið hefur sterka nærveru, mikinn karakter og sinn einstaka stíl.


Bókið einkaskoðun hjá Báru fasteignasala í síma 899-8809 eða sendið póst á bara@miklaborg.is


Komið er inn í mjög rúmgott anddyri en gólfhiti er í öllum gólfum á neðri og efri hæð, utan hjónaherbergis sem er með hefðbundnum ofnum.

Neðri hæðin er með heilsteyptum terrazo-flísum sem slípaðar eru á staðnum og settar í álramma, en á efri hæðinni er náttúrusteinn ásamt gegnheilu parketi.

Á neðri hæðinni voru áður fimm svefnherbergi, en þrjú þeirra hafa verið sameinuð í rúmgott alrými. Eitt þeirra er nýtt sem skrifstofa í dag. Einnig er þar baðherbergi með sturtu, miklir forstofuskápar ásamt geymslum og innangengt er í bílskúrinn. 

Fallegur stigi leiðir upp á efri hæðina þar sem stórar og bjartar stofur taka við. Í stofunni er glæsilegur arinn, sem er miðpunktur rýmisins, fullkominn til að skapa hlýleika. Útgengt er úr stofunni út á stórar útsýnissvalir sem liggja meðfram framhlið hússins og bjóða upp á einstakt útsýni yfir voginn og til Reykjaness. Þar er notalegt að njóta dagsins og náttúrunnar, hvort sem er í sólinni yfir daginn eða við sólarlag á kvöldin. Á austurhlið hússins er einnig notaleg verönd þar sem morgunsólin skín inn. Í eldhúsi er Bulthaup innrétting með Gaggenau og Sub-Zero tækjum. Þar er mikið skápapláss og beint útgengi í bakgarð, þar sem gengið er upp á verönd.

Rúmgóð borðstofa er samliggjandi eldhúsi. Hjónaherbergi er rúmgott og bjart með miklu skápaplássi. Tvö baðherbergi eru á hæðinni, annað með baðkari og sturtu.


Allir gluggar hússins hafa verið endurnýjaðir með vönduðum hætti, sem undirstrikar vel viðhaldið á húsinu. Allar stéttar utan húss og heimreið eru upphitaðar, sem auðveldar alla umhirðu á köldustu dögum ársins.

Húsið hefur verið mikið endurbætt með virðingu fyrir upprunalegum stíl þess og er í góðu ástandi. Að auki er rúmgóður garður umhverfis húsið með stæði fyrir nokkra bíla. Göngu- og hlaupaleiðir um Kársnesið gera þetta svæði bæði eftirsóknarvert og fjölskylduvænt.


Einstök eign sem á sér fáa líka. 


Nánari upplýsingar veitir Bára Gunnlaugsdóttir fasteignasali í síma 899-8809 eða bara@miklaborg.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (46)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ásendi 1
Á einni hæð
Skoða eignina Ásendi 1
Ásendi 1
108 Reykjavík
323,2 m2
Einbýlishús
734
Tilboð
Skoða eignina Stórihjalli 25
Opið hús:12. okt. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Stórihjalli 25
Stórihjalli 25
200 Kópavogur
228,1 m2
Raðhús
714
591 þ.kr./m2
134.900.000 kr.
Skoða eignina Álfhólsvegur 57
Heitur pottur
Opið hús:13. okt. kl 17:15-17:45
Álfhólsvegur 57
200 Kópavogur
222,4 m2
Einbýlishús
635
854 þ.kr./m2
189.900.000 kr.
Skoða eignina Bjarmaland 16
a Bjarmaland 16. framan copy.jpg
Skoða eignina Bjarmaland 16
Bjarmaland 16
108 Reykjavík
532,8 m2
Einbýlishús
956
Fasteignamat 384.550.000 kr.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin