Föstudagur 23. október
Fasteignaleitin
Skráð 31. júlí 2026

Starhagi 6

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vesturbær-107
345.9 m2
10 Herb.
4 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
275.300.000 kr.
Brunabótamat
123.900.000 kr.
ÞÞ
Þröstur Þórhallsson
Löggiltur fasteignasali
Eignalisti
Byggt 1958
Garður
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2028950
Landnúmer
106633
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer íbúðar
010101
Vatnslagnir
Ástand ekki vitað
Raflagnir
Endurnýjaðar
Svalir
1
Lóð
100.00
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging

Miklaborg kynnir: Glæsilegt einbýlishús á frábærum stað í Vesturbæ Reykjavíkur. Húsið hefur verið mikið endurnýjað og er með aukaíbúð í kjallara. Stór hellulagður suðurgarður.

Húsið er til afhendingar við kaupsamning.

Nánari upplýsingar veitir Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is



Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Ísl. er húsið 345,9 m2, flatarmál íbúðarrýmis er 313,9 m2 og flatarmál bílskúrs 32 m2. Húsið sem er hæð, ris og kjallari skiptist í 4 svefnherbergi, eitt fataherbergi, 3 baðherbergi, 3 stofur, borðstofu og 2 eldhús ásamt þvottaherbergi.

Nánari lýsing:
Aðalhæð 106,5 m2.

Komið er inn í flísalagt anddyri sem er með fatahengi. Glæsileg gestasnyrting er til hliðar. Úr anddyri er gengið inn í rúmgott hol og þar á móti eru stórar og bjartar stofur með fallegum gluggum. Svalir eru út af innri stofu. Eldhús er með sérsmíðaðri eikar innréttingu og er með eldunareyju og stóru helluborði. Steinn er á borðum. Borðstofa er opin við eldhús og stofur. Vandað parket er á gólfum. Úr eldhúsi er útgengt á pall sem snýr í norður og þar er grillaðstaða. Af pallinum eru tröppur niður á hellulagða verönd.

Efri hæð (ris) 101,9 m2.
Glæsilegur viðarstigi parketlagður upp á efri hæð. Tvö svefnherbergi eru á hæðinni og eru þau bæði parketlögð. Hjónaherbergið er með sér fataherbergi og sér baðherbergi með sturtu og baðkari, vegghengt salerni, hiti í gólfi, flísar á gólfi. Sér þvottaaðstaða á efri hæð þar sem áður var svefnherbergi.

Kjallarinn 105,5 m2.
Í kjallara eru tvö rúmgóð svefnherbergi, eldhús með hvítri fallegri innréttingu, rúmgóð stofa, baðherbergið, flísalagt með sturtu og þvottaaðstöðu. Hægt er ganga út í garðinn úr stofu. Gólfefni parket og flísar. Gólfhiti. Sérinngangur er í kjallarann og þar getur því verið aukaíbúð.
Bílskúr 32 m2.

Hiti í innkeyrslu og bílastæði fyrir framan bílskúr. Bílskúr er með vatni og rafmagni. 16 m2 garðhús er á baklóð. Húsið hefur fengið gott viðhald og Þakefni er kopar.  Rennur, dren, rafmagn, allir gluggar, gólfefni, innréttingar og lagnir endurnýjaðar 2008. Fallegur gróðursæll garður er fyrir framan húsið. Hleðstöð er á lóð og hiti í tröppum aðalinngangs.

Eignin er til afhendingar við kaupsamning.

Nánari upplýsingar veitir Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is


Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (55)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bollagarðar 85
Bílskúr
Heitur pottur
Skoða eignina Bollagarðar 85
Bollagarðar 85
170 Seltjarnarnes
213 m2
Einbýlishús
614
962 þ.kr./m2
204.800.000 kr.
Skoða eignina Virkisás 22 - auka íbúð.
Bílskúr
Virkisás 22 - auka íbúð.
221 Hafnarfjörður
315,9 m2
Einbýlishús
926
632 þ.kr./m2
199.800.000 kr.
Skoða eignina Bollagarðar 101
Heitur pottur
Opið hús:27. okt. kl 16:45-17:30
Skoða eignina Bollagarðar 101
Bollagarðar 101
170 Seltjarnarnes
217,1 m2
Einbýlishús
724
1036 þ.kr./m2
225.000.000 kr.
Skoða eignina Þrúðsalir 9
Bílskúr
Skoða eignina Þrúðsalir 9
Þrúðsalir 9
201 Kópavogur
362,2 m2
Einbýlishús
925
908 þ.kr./m2
329.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin