Víðihlíð 1 íbúð 101 Hörgársveit - Nýbygging
Glæsileg 4ra herbergja íbúð á neðri hæð í norðurenda í nýju sex íbúða fjölbýlishúsi í Hörgársveit – stærð 105,9 m²
Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning
Eigandi skoðar að taka ódýrari íbúð.Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, hjónaherbergi, tvö barnaherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.
Sameiginleg 8,7 m² vagna- og hjólageymsla.
- Vandaðar innréttingar frá GKS
- Ísskápur með frysti og uppþvottavél fylgir með við sölu.
- Húsið er í flokki B fyrir hljóðvist sem er umfram lágmarkskröfur byggingarreglugerðar um kröfur fyrir hljóðeinangrun innbyrðis á milli íbúðareininga
- Þrefalt gler í öllum gluggum
- Aukin lofthæð
- Viðhaldsfrí utanhússklæðning
- 10,9 m² steypt verönd
InnréttingarEldhús, innréttingar og skápar eru af vandaðri gerð frá GKS. Eldhúsinnrétting er úr hnotu og hvít með
mjúklokunarbúnaði. Bekkplata er úr plasti í hvítu marmaralíki. Veggplata er á milli bekkplötu og efri
skápa, hún er eins á litinn og bekkplata.
Eldhúsi er skilað með fullbúnum heimilistækjum: span-helluborði (AEG), ofni (AEG), ísskáp með frysti
(AEG), viftu með kolasíu frá Elica (lofti er blásið út úr íbúðum frá eldavél) og uppþvottavél (AEG).
Fataskápar í svefnherbergjum og forstofu eru hvítir.
Þvottahús er með hvítri innréttingu.
Gólfefni - Í forstofu, baðherbergi, þvottarými og geymslu eru gólf flísalögð með ljósgráum flísum. Önnur gólf
innan íbúða eru lögð með eikar harðparketi.
Innihurðar eru hvítar og hurðarhúnar úr burstuðu stáli.
Innveggir eru flestir staðsteyptir, þeir veggir sem eru ekki steyptir eru gerðir úr blikk-grind og klæddir með plötum í flokki 1. Innveggir uppfylla lágmarkskröfur fyrir lofthljóðeinangrun innbyrðis á milli herbergja innan íbúðareiningar samkvæmt ÍST 45:2016
Gluggar eru ál/trégluggar hvítir að innan, dökk gráir að utan. Öryggisgler er í hurðum og þrefalt verksmiðjugler í gluggum.
Útveggir eru 180mm járnbentir og staðsteyptir. Veggir eru einangraði að utan með steinull og einangrun er í flokki A1 samkvæmt EN13162. Klætt er utan á útveggi með tvöföldu álkerfi og með öndunardúk (TRASPIR 115 eða sambærilegt). Ysta byrði útveggja (klæðning) er 8 mm Swisspearl Pantina sementplata. Veggir á milli íbúða eru 300mm járnbentir og staðsteyptir með brunaþol REI-90. Þeir uppfylla hljóðvistarflokk B samkvæmt staðlinum ÍST 45 sem er umfram lágmarkskröfur byggingarreglugerðar um kröfur fyrir hljóðeinangrun innbyrðis á milli íbúðareininga.
Þakið er timburþak/sperruþak (A-þak), klætt og varið með BMI Icopal tjörudúk
Útsogs/ferskloftkerfi. Vélrænt útsog er úr baðherbergi og geymslu. Útsog íbúðar er tryggt með þakblásarar með öflugum blæstri.
Hitalagnir eru í gólfi íbúðar (gólfhitakerfi) og er stýrt með stafrænum-hitanemum í hverju rými. Handklæðaofn er á baðherbergi.
Raflögn er fullfrágengin. Í lofti í stofu, eldhúsi, hjónaherbergi og baði eru innfelld led-ljós, sem fylgja með íbúðinni. Hefðbundinn ljós eru í öðrum svefnherbergjum sem og inni geymslu og inntaksrými (utan íbúðar). Önnur ljós fylgja ekki íbúð.
Ídráttarrör og staurar eru fyrir mjöglega hleðslustöð. Útilýsing er við inngang í búðar og svalir.
Sólpallar við hús eru staðsteyptir og ná tæpa tvo metra út frá húsi. Lengd palla er um 5.7 metrar. Handrið, galvaniseruð koma á kantinn á pallinum.
Lóð verður jöfnuð og tyrft. Ef kostur gefst verður sáð í lóð en ef framkvæmdir eru að hausti er það ekki mögulegt. Stéttar á jarðhæð eru hellulagðar. Eignin er afhent án trjágróðurs á lóð.
Staðsteyptar sorptunnugeymslur eru staðsettar nærri götu.
Malbikuð
bílastæði eru fyrir framan húsið. Snjóbræðsla með frostlegi (lokað kerfi) er í gangstéttum og bílastæði fyrir hreyfihamlaða.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar þess verður krafist (0,3% af brunabótamati viðkomandi eignar).
Byggingarverktaki: Hamrar Byggingarfélag ehf. www.hamrarbygg.is
Eignin er í einkasölu
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.