STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR:Snyrtilega, bjarta og vel skipulagða
3ja herbergja íbúð á jarðhæð við Lindasmára 37, 201 Kópavogi. Íbúðin er í litlu og rólegu fjölbýlishúsi á eftirsóttum og skjólsælum stað í Smáranum.
Samtals birt stærð séreignar er 92,2 fm skv. Þjóðskrá. Stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, íþróttasvæði, verslanir og afþreyingu, þar á meðal Smáralind, Fífuna og íþróttasvæði Breiðabliks.
Nánar tiltekið eign merkt: Lindasmári 37,
fastanúmer 221-8822, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar- og sameignarréttindi.
Stærð íbúðar er 92,2 fm. Eigninni fylgir stór afgirtur sérafnotaflötur með skjólgóðum palli sem snýr í suður, nýtist afar vel til útiveru. Björt og vel skipulögð endaíbúð á jarðhæð með tveimur svefnherbergjum Smekklega endurnýjað baðherbergi með sturtu og glerþili. Góð staðsetning í vinsælu og fjölskylduvænu hverfi í Smáranum.
Ásett verð: 74.600.000 kr.**Smelltu hér til að skoða myndband um eignina**
Sölupunktar eignar:- Björt og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð.
- Stór afgirtur sérafnotaflötur með skjólgóðum palli.
- snyrtilegt baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, góða innréttingu og sturtu með glerþili.
- Góð staðsetning í vinsælu og fjölskylduvænu hverfi í Smáranum.
- Eign á vinsælum stað sem vert er að skoða.
**Smelltu hér til að sækja söluyfirlit**Eignin skiptist í:Forstofu/hol, stofu og borðstofu, eldhús með borðkrók, hjónaherbergi, svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús/geymslu og afgirtan sérafnotaflöt.
Nánari lýsing:Forstofa/hol: Flísalögð forstofa með fataskáp og góðu aðkomurými.
Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð með stórum gluggum og góðu rými fyrir bæði setustofu og borðstofu, parket á gólfi. Útgengt er á skjólgóðan pall og stórann afgirtan sérafnotaflöt.
Eldhús: Snyrtilegt eldhús með góðri innréttingu, flísum á milli skápa og góðu vinnuplássi. Borðkrókur er við glugga og parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með góðum fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi: Gott herbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi: Smekklegt baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, hvítri vaskinnréttingu, handklæðaofni og rúmgóðri sturtu með glerþili.
Þvottahús/geymsla: Rúmgott og mjög nýtilegt rými inn af eldhúsi með flísum á gólfi, góðri vinnuaðstöðu, innréttingum/skápum og plássi fyrir bæði þvottavél og þurrkara. Gott geymslupláss er í rýminu og þvottaaðstaðan er snyrtileg og vel skipulögð.
Útisvæði: Eigninni fylgir stór og afgirtur sérafnotaflötur með skjólgóðum palli sem snýr í há-suður og góðu plássi fyrir útihúsgögn, grill og almenna útiveru.
Sameign: Sameign hússins er snyrtileg og húsið stendur á vinsælum stað í grónu hverfi.
Framkvæmdir á húsinu á síðustu árum:Árið
2024 fóru fram múrviðgerðir á öllu húsinu og húsið var málað að utan. Árið
2024 var skipt um hluta af gluggum á suðurhlið hússins, þar á meðal glugga og gler í eldhúsi. Árið
2025 var skipt um þak, þakglugga og þakrennur.
Nánari upplýsingar veitir:Benedikt Ólafsson, löggiltur fasteignasali og félagi í Félagi fasteignasala, í síma 661 7788 eða á netfanginu bo@stofnfasteignasala.is.Við hjá STOFN Fasteignasölu setjum þig í fyrsta sætið – með heilindum, metnaði og persónulegri þjónustu.
Það er okkur sannur heiður að fá að vera fasteignasalinn þinn.
STOFN Fasteignasala – setjum þig í fyrsta sætið.