Fasteignasalan TORG kynnir: Einstaklega bjarta og glæsilega íbúð á efri hæð með sérinngangi við Ögurás 7, Garðabæ.
Um er að ræða frábæra eign sem er skráð 113,1 fm og þar af er geymsla 7,1 fm. Eignin er vel skipulögð 4ja herbergja með suðvestursvalir og stórkostlegu útsýni meðal annars niður að sjó. Eftirsótt og fjölskylduvæn staðsetning í Ásahverfinu þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, leikskóla, leikvelli og frábærar grænar gönguleiðir. Allar nánari upplýsingar veitir Andrea Lárusdóttir aðstoðarm. lgf. í GSM: 861-0125 eða andrea@fstorg.is og/eða Sigurður Gunnlaugsson fasteignasali.Nánari lýsing:Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með tvöföldum fataskáp undir yfirhafnir, flísar á gólfi.
Eldhús: Endurnýjað árið 2016. Frábært skipulag með viðar innréttingu og dökkum quarts stein á borði. Stór eyja sem hægt er að sitja við, spanhelluborð með innbyggðum gufugleypi. Flísar á gólfi.
Stofa: Stofan er samliggjandi eldhúsi, einstaklega björt og falleg. Einkennist af stórum gluggum og mikilli lofthæð eða allt að 4,16 metrum. Glæsilegur óhindraður horngluggi sem gerir heilmikið fyrir rýmið. Gott útsýni er frá stofu og útgengt er á 7,4 fm suðvestursvalir. Viðarparket á gólfum.
Svefnherbergi: Herbergin eru þrjú á svefnherbergjagangi og öll með góðum fataskápum. Viðarparket á gólfum.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, sturta/baðkar með glerskilrúmi. Viðar innrétting og spegla efriskápar fyrir ofan salerni ásamt led-spegli. Salerni er upphengt og handklæðaofn er í þvottarými inn af baðherbergi.
Þvottahús: Rúmgott, innangengt af baðherbergi, hvít innrétting, annars vegar með vinnuborði öðru megin og þvottaaðstöðu hinu megin. Handklæðaofn. Flísar á gólfi.
Geymsla: Skráð 7,1 fm inn af eigninni sem eigendur nýta sem skrifstofu í dag.
Bílastæði: Eru malbikuð, sameiginleg á lóð með einni rafhleðslustöð fyrir bíla og tengi til að bæta við fleirum. Snjóbræðsla er á plani og stétt fyrir framan hús.
Sameign: Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á lóð.
Frekari upplýsingar: Ögurás 7 er sérlega góð, glæsileg og vel skipulögð eign sem hentar einkar vel fyrir þá sem vilja meira næði í minna fjölbýlishúsi með sérinngangi og góðri aðkomu. Eign með frábæru útsýni í fjölskylduvænu hverfi.
Stutt er í alla þjónustu, leikskóla, íþróttamannvirki, grunn- gagnfræðiskóla sem og spark- og leikvelli í göngufæri.
Endurbætur að sögn seljanda: - Eldhús endurnýjað árið 2016, rafvirki lagði nýtt rafmagn í eyju. Veggur milli forstofu og eldhúss framlengdur.
- Skipt um gler í hjónaherbergisglugga. Árið 2025 voru allir gluggar yfirfarnir og gert við þá glugga sem talin var þörf á.
- Nýr ofn undir hornglugga.
Allar nánari upplýsingar veitir Andrea Lárusdóttir aðstoðarm. lgf. í GSM: 861-0125 eða andrea@fstorg.is og/eða Sigurður Gunnlaugsson fasteignasali.