Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - gunnar@kaupa.is
Tjarnarlundur 17b - Björt og mikið endurnýjuð þriggja herbergja íbúð á annarri hæð á góðum stað ofarlega á Brekkunni - stærð 82,3 m².
Farið var í miklar framkvæmdir árið 2020, þar var baðherbergið flísalagt, skipt um eldhúsinnréttingu, innfelld lýsing sett í stofu, eldhúsi og forstofu og skipt um öll gólfefni.Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og sér geymslu í sameign
Nánari lýsing:Forstofan er með harðparketi á gólfi og opnum fataskáp sem fylgir með við sölu eignar.
Stofan er rúmgóð og björt með harðparketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á steyptar vestursvalir með góðu útsýni.
Eldhúsið er með góðri U-laga innréttingu með innbyggðum ísskáp og 45 cm uppþvottavél sem fylgir með við sölu eignar. Flísar eru fyrir ofan bekkplötuna, einnig er opnanlegur gluggi, búrskápur og borðkrókur.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með harðparketi á gólfi og í stærra herberginu er nýlegur sexfaldur fataskápur.
Baðherbergið er flísalagt í gólf og gólf með hvítri innréttingu og handlaug, sturtu með glervæng, vegghengdu wc og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Sér geymsla er í sameign skráð 5,17 m² og með hillum sem geta fylgt með við sölu.
Annað:- Eign sem var mikið endurnýjuð 2020
- Innfelld lýsing er í stofu, eldhúsi og forstofu
- Frábær staðsetning þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, KA svæðið sem og verslunarkjarna við Hrísalund
- Hægt er að komast inn í stigaganginn með kóða á jarðhæð
- Hjóla og vagnageymsla er á jarðhæð
- Gott útsýni er úr eigninni
Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á gunnar@kaupa.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.