Fasteignasalan TORG Kynnir: Sérlega glæsilegt og vandað einbýlishús á einni hæð með bílskúr. Húsið er alls 240fm að stærð, skilast samkv. byggingarstigi 3 (Fullgerð bygging að utan, með grófjafnaðir lóð, og tilbúin til innréttingar að innan), sjá nánar skilalýsingu seljanda. Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Gunnlaugsson fasteignasali GSM: 898-6106 eða sigurdur@fstorg.isSækja söluyfirlit HÉRNánari upplýsingar úr skilalýsingu:
Frágangur að utan:Lóð er grófjöfnuð með jarðvegi sem er núna á svæðinu og skilast lóðin í u.þ.b. 10-20 cm neðan við hæð á gólfplötu. Bílaplan og svæðið framan við húsið og utan með húsinu verður skilað með endurnýjuðum frostfríum jarðvegi og skilast í 10-20cm neðan við gólfplötu. Stoðveggur milli S11 og S13 kominn og búið að fylla að honum.
Þak er með PVC-dúk sem vatnsvörn, ysta lag, sem gerir það að verkum að einangrun er öllum stundum þurr og heldur því einangrunargildi sínu að fullu öllum stundum. Húsið skilast ekki með torfi á þaki.
Veggir eru klæddir með ál-skúffuklæðning með lóðréttiri stuðlaáferð. Klæðningin er samsett og er hún byggð upp á þunnri álplötu að utan og innan með svonefndum brunavörðum FR steinefnakjarna inn á milli. Aðallitur á veggjum er Manganese og er litur við anddyri Bronze Metallic.
Gluggar og hurðir eru álklæddir timburgluggar með þreföldu gleri og eru af gerðinni Velfac en Húsasmiðjan er með umboðið og sér um þjónustu. Litur á gluggum að innan er Ral 9010 en litur á gluggum að utna er Granit 60 sem á að harmonera við lit á veggja klæðningu.
Bílskúrshurð er úr áli frá Nassau DK og er með mótor.
Raflagnir: Inntak rafmagns og ljósleiðara er komið. Rafmagnstafla er kominn og er hún með búnaði fyrir vinnuljós. Búið að draga allar raflagnir frá töflu í vegg- og loftadósir, ekki eru komnir tenglar eða rofar. Lagnir og dósir er komnar fyrir thermostat stýringu fyrir gólfhita. Gert er ráð fyrir innfeldum ljósum í loftum í öllum rýmum.
Pípulagnir: Inntak á heitu og köldu vatni er komið. Inntaksgrind fyrir heit og kalt neysluvatn er uppsett og er grindin fullfrágengin. Búið er að tenga gólfhita og neysluvatn við inntaksgrind. Neysluvatnslagnir eru rör í rör og lagðar að aftöppunarstað. Hitalagnir eru golfhitalagnir með uppblöndunarbúnaði og er þegar búið að leggja þær og tengja við inntaksgrind og er gólfhiti þegar virkur. Lítilsháttar breytingar eru á hitalögn til að mæta aðstæðum. Gert er ráð fyrir handklæðaofnum á böðum. Fráveitulagnir eru skv teikningu og er þegar búið að leggja þær og tengja við fráveitu í götu. Ekki verða komin niðurföll í gólf. Snjóbræðsla verður ekki komin en gert er ráð fyrir henni í inntaksgrind.
Annað: Eftir er að mála lokaumferð veggja og lofta en flötum er skilað með ljósum litum. Engar innréttingar fylgja. Enginn endabúnaður verður kominn í innréttingar. Engar hurðir. Engin gólfefni. Eftir að flota gólf. Eftir að flísaleggja böð. Ekki verða settir sólbekkir. Ekki kominn niðurföll. Ekki kominn hreinlætistæki.
Nánari útlistun á lýsing er við sölu og samkv. skilalýsngu seljanda.
Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Gunnlaugsson fasteignasali GSM: 898-6106 eða sigurdur@fstorg.isForsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,-. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
TORG fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.