Berglind Hólm lgfs. og RE/MAX kynna: Sérlega glæsilegt endaraðhús á einni hæð með fjórum svefnherbergjum innst í botnlanga að Austurkór 61. Húsið stendur á jaðri byggðar til suðurs með fallegu útsýni bæði út í náttúruna frá garðinum og einnig yfir höfuðborgina, Snæfellsjökulinn og Esjuna fyrir framan húsið. Lóðin er sérlega glæsileg með mjög stórri timburverönd úr viðhaldsléttu Lerki. Á veröndinni er heitur- og kaldur pottur, falleg tunnu sauna (með óskertu útsýni út í náttúruna), og tveir geymsluskúrar, annar skúrinn er upphitaður og með salerni og vaski. Einkar gott bílastæði með snjóbræðslu er fyrir framan húsið sem rúmar allt að 4-5 bíla, búið er að tengja fyrir hleðslustöð. Gólfhiti er í öllu húsinu ásamt fallegri innfeldri lýsingu og hljóðdúk í loftum í alrými. Stórir gólfsíðir gluggar eru í alrýminu sem skarta glæsilegri óskertri náttúrusýn upp í hlíðar Heiðmerkurinnar.
Skipulag hússins skiptist í: forstofu, gott alrými sem rúmar eldhús, borðstofu og setustofu, 4 svefnherbergi, tvö baðherbergi með sturtu, þvottaherbergi, skrifstofurými/geymslu og bílskúr.
Innréttingar eru sérsmíði, brúnbæsuð Eik frá Fagus trésmiðju.
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is
Nánari lýsing eignar:Keyrt er að húsinu inn um lítinn botnlanga í jaðri byggðar við Austurkór 61. Húsið er innsta hús og því rólegt í kringum eignina. Fyrir framan húsið er tvískipt bílastæði, hellulagt með tveimur hleðslustæðum og snjóbræðslu. Bílastæðin rúma allt að 4-5 bíla í senn.
Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með fallegum ljósum flísum á gólfi, góðum fataskáp sem nær upp í loft með rennihurðum og bekk við stóran spegil.
Alrými: Eldhús, borðstofa + setustofa
Eldhús: Mjög stór og góð sérsmíðuð innrétting er í eldhúsinu á einn vegg + eyju. Innréttingin er á allan vegginn frá gólfi og upp í loft sem gefur fallegt heildrænt útlit. Góður vinnu/búrskápur er í einingunni ásamt innbyggðum kæliskáp og ofn er í vinnuhæð. Stór eldunareyja með steinborðplötu er á móti innréttingunni á vegg sem skilur á milli eldhúss og borðstofu. Í eyjunni er span helluborði, vaskur og innbyggð uppþvottavél. Mjög mikið og gott vinnupláss.
Stofa/Borðstofa: Stofan er rúmgóð með parketi á gólfi og gólfsíðum stórum gluggum. Búið er að setja vandaðan hljóðdúk í loftið sem gefur góða hljóðvist í rýmið. Útgengt er frá stofunni út á stóra afgirta lóð sem snýr í suður og vestur. Garðurinn skartar stórri timburverönd með skjólveggjum og einstöku útsýni, heitum og köldum potti, fallegri tunnu saunu með glugga og útsýni út í náttúruna, tveimur geymsluskúrum (öðrum upphituðum með glugga, salerni og vaski, og stórum grasfleti fyrir framan veröndina. Einstök náttúruperla.
Baðherbergi: Á gangi áður en komið er inn í alrýmið er rúmgott baðherbergi með fallegum flísum á gólfi og á veggjum við salerni og í sturturýminu. Stór innrétting er á vegg með fjórum skúffum og tveimur handlaugum. Á vegg fyrir ofan vaskaborðið er þrefaldur speglaskápur. Sturtan er rúmgóð beint á gólf með innbyggðum sturtuhaus og blöndunartækjum og glerskilrúmi.
Hjónaherbergi + baðherbergi: Hjónaherbergið er með fallegu parketi á gólfi og stórum góðum fataskápum. Sér baðherbergi er inn af hjónaherberginu með innfeldri lýsingu, með fallegum flísum á gólfi og á veggjum við sturtu og salerni. Sturta er beint á gólf með glervegg og góðu aðgengi. Innrétting er á vegg undir handlaug og speglaskápur er á vegg fyrir ofan innréttinguna. Opnanlegur gluggi.
3 x barnaherbergi: Barnaherbergin eru þrjú. Öll herbergin eru rúmgóð með fallegu parketi á gólfi.
Þvottahús: Rúmgott þvottaherbergi skilur á milli íbúðarhluta hússins og bílskúrs. Fallegar flísar eru á gólfi og sérlega góð innrétting þar sem þvottavél og þurrkari eru í vinnuhæð.
Bílskúr + geymsla: Inn af þvottaherberginu er góð geymsla sem nýtt er í dag sem skrifstofurými. Gengið er inn í bílskúrinn frá geymslunni. Einnig er inngönguhurð að utanverðu við hliðina á aðalinngangi hússins. Sjálfvirkur hurðaopnari er á bílskúrshurðinni og Epoxid er á gólfum. Saman eru bílskúrinn og geymslan skráð 26,5 m2, léttur veggur skilur á milli þeirra og er því auðvelt að stækka bílskúrsrýmið ef þörf er á:
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is