Björt og rúmgóð 63,4 fm. 2ja herbergja íbúð á 1. hæð með sérinngangi.
** Eignin er laus og afhent við kaupsamning **Domusnova Borgarnesi og Sjöfn Hilmarsdóttir lögg.fasteignasali kynna: Egilsgata 2, 63,9 fm. tveggja herb íbúð á 2. hæð með sérinngang. Húsið Borgarbraut 1-3 og Egilsgata 2, er steinsteypt og 4 hæðir með skúrþaki og risþaki. Íbúð 0102 samanstendur af forstofu, eldhúsi, baðherbergi, stofu og svefnherbergi.
Nánari lýsing: Forstofa: Fataskápur. Flísar á gólfi.
Eldhús: Hvít innrétting með efri skápum. Viðarborðplata. Parket á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Gólfsalerni, handlaug og sturtuklefi. Tengi fyrir þvottavél. Flísar á gólfi.
Svefnherbergi: Innbyggður fataskáp. Parket á gólfi.
Skipt hefur verið um gler og glugga í svefnherbergi og stofu.
Baðherbergið endurnýjað að hluta, m.a. nýr sturtuklefi.
Skipt um þak kringum árið 2000
Íbúðin er vel staðsett í Borgarnesi þar sem stutt er í alla þjónustu, grunnskóla, sundlaug og íþróttasvæði.
Nánari upplýsingar veitir:Sjöfn HilmarsdóttirLöggiltur fasteignasali og lögfræðingur
sími 691 4591 / sjofn@domusnova.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.