Mánudagur 23. mars
Fasteignaleitin
Skráð 5. mars 2026

Laugavegur 133

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
57.6 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
59.900.000 kr.
Fermetraverð
1.039.931 kr./m2
Fasteignamat
52.600.000 kr.
Brunabótamat
29.400.000 kr.
JR
Jón Rafn Valdimarsson
löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2009733
Landnúmer
102855
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer íbúðar
010102
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar
Svalir
0
Lóð
18.57
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging

Miklaborg kynnir: Glæsileg 2ja herbergja íbúð á jarðhæð með mikillri lofthæð, fallegum innréttingum, vönduðum tækjum og einstaklega gott skipulag þar sem hver einasti fermeter nýtist mjög vel. Harðparket er á gólfum utan baðherbergis sem er með fallegum flísum. Þetta er einstök miðbæjaríbúð.

Samkvæmt nýjustu ákvörðunum borgarráðs eru miklar breytingar á Hlemmsvæðinu framundan, bæði í kringum og fyrir ofan mathöllina, sem munu umbreyta ásýnd svæðisins. Hlemmtorg verður hannað sem nútímalegur og vistvænn borgarkjarni. Almenningssamgöngur munu verða eina akandi umferðin um torgið, og rými fyrir gangandi ásamt hágæða aðstöðu fyrir hjólandi vegfarendur verður stórbætt. Framundan er því jákvæðar skipulagsbreytingar sem munu hafa jákvæð áhrif á svæðið í kring bæði hvað varðar eftirspurn á íbúðum sem og lífsgæði þeirra sem þar búa.

Íbúðin sjálf er skráð 51,4 fm og til viðbótar er 6,2 fm geymsla í kjallara sameignar, séreign er því samtals 57,6 fm.

Nánari lýsing:

Anddyri: Komið inn í rúmgott anddyri með miklum fataskápum sem ná upp í loft.

Eldhús: Sérsmíðaðar innréttingar og einstaklega falleg Marrakech flísalögn á milli skápa sem gefa mikin svip. Led lýsing undir efri hillur að hluta falleg borðplata og vönduð tæki en um er að ræða innbyggðan ísskáp með frysti ásamt uppþvottavél, ofn og helluborð með hangandi háf yfir. Vel hannað eldhús með góðu vinnuplássi.

Stofa: Björt stofa þar sem lofthæðin nýtur sín mjög vel með björtum gluggum.

Þvottaherbergi: Innan íbúðar gegnt baðherbergi.

Baðherbergi: Stílhreint með fallegri flísalögn á gólfi sem og veggjum. Sturta með gler skilrúmi, skápainnrétting undir og yfir handlaug og upphengd salernisskál.

Svefnherbergi: Snýr í átt að bakgarð og er með stórum fataskápum.


Í kjallara sameignar er rúmgóð sérgeymsla undir tröppum frá jarðhæð. Sameiginlegt þvottahús þar sem íbúðin hefur sitt stæði en eins og sagt var frá hér að ofan er þvottaherbergi innan íbúðar, með tengi fyrir þvottavél og gott pláss fyrir þurrkara.


Bílastæði eru í bakporti þar sem er fallegur garður (Skúlagarður) þar sem börn geta leikið sér og aðrir notið náttúrunnar í góðu skjóli í miðbæ Reykjavíkur.


Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is

www.jonrafn.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (26)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lundur 4
Bílastæði
Skoða eignina Lundur 4
Lundur 4
200 Kópavogur
121.6 m2
Fjölbýlishús
312
1068 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Hverfisgata 49
Opið hús:26. mars kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hverfisgata 49
Hverfisgata 49
101 Reykjavík
64.6 m2
Fjölbýlishús
211
850 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 56 (106)
stebbi_vefur (3).png
Áshamar 56 (106)
221 Hafnarfjörður
92.1 m2
Fjölbýlishús
413
798 þ.kr./m2
73.500.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 56 (109)
NorthWestView.jpg
Áshamar 56 (109)
221 Hafnarfjörður
104.5 m2
Fjölbýlishús
313
746 þ.kr./m2
78.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin