Nýtt í sölu! Gerplustræti 24 Mosfellsbæ - Afar falleg, rúmgóð og vel skipulögð 3ja herb. íbúð með sérinngangi og afgirtum palli til suðvesturs!Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson og Guðmundur Hallgrímsson lögg. fasteignasalar kynnia afar fallega og vel skipulagða 3ja herbergja 99,3 fermetra íbúð á 1. hæð með sérinngangi í snyrtilegu og nýlegu fjölbýli byggðu 2016 við Gerplustræti 24 í Mosfellsbæ. Íbúðin er með stórri afgirtri verönd til suðvesturs og sérbílastæði í bílakjallara. Góð þvottaaðstaða innan íbúðar. Sérgeymsla er innan íbúðar og hefur verið nýtt sem barnaherbergi.
Hellulagðar stéttar fyrir framan hús og tyrfður bakgarður. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð. Sameign er snyrtileg og til fyrirmyndar.
Staðsetning íbúðar í rólegu fjölskylduvænu hverfi í Helgafellslandi. Helgafellsskóli í göngufjarlægð (Gerplustræti 14) og nýlegur leikskóli sömuleiðis (Sumarhús). Frábærir útivistamöguleikar allt í kring og fallegar göngu og hjólaleiðir.
Lýsing eignar:Sér inngangur er í íbúð.Forstofa: Með flísum á gólfi og skápum.
Alrými samanstendur af stofu og eldhúsi.Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri HTH eldhúsinnréttingu. AEG stál bakaraofn og Electrolux spanhelluborð. Tengi fyrir uppþvottavél og lýsing undir efri skápum. Gluggar til suðvesturs.
Stofa: Er rúmgóð og með harðparketi á gólfi. Gluggar til suðvesturs og útgengi á verönd.
Verönd: Er afgirt og snýr til suðvesturs inn í bakgarð hússins.
Hjónaherbergi: Með harðparketi á gólfi, skápum og gluggum til austurs.
Geymsla/herbergi: Er staðsett inn af hjónaherbergi með harðparketi á gólfi. Getur einnig nýst sem fataherbergi eða barnaherbergi (er nýtt sem barnaherbergi í dag).
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til austurs.
Baðherbergi: Er mjög rúmgott, með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili, innrétting við vask með lýsingu í spegli. Handklæðaofn og upphengt salerni. Tenglar fyrir þvottavél/þurrkara, gott vinnuborð og skápapláss.
Bílastæði: Í lokuðum bílakjallara. Grunnkerfi fyrir rafhleðslustöðvar komið í bílakjallara.
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla: Er staðsett á jarðhæð í sameign hússins.
Til er teikning fyrir yfirbyggðar svalir.
Dýrahald er leyft í húsinu.Allar nánari upplýsingar veita:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is
Guðmundur Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 898-5115 eða á netfanginu gudmundur@fastlind.is