BYR fasteignasala kynnir í einkasölu BORGARHRAUN 9, 810 Hveragerði. Fimm herbergja einbýlishús á einni hæð með tvöföldum bílskúr.
Staðsett í grónu hverfi á vinsælum stað í Hveragerði, stutt í alla almenna þjónustu sem og útivistarsvæði. Smellið hér fyrir staðsetningu.Húsið er timburhús, byggt árið 1975, bílskúr úr timbri byggður árið 1988. Íbúðarhús 120.0 m² og bílskúr 49.0 m², samtals 169.0 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Anddyri, stofa og borðstofa, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, gangur/hol, gestasalerni og þvottahús og búr/geymsla, loft. Tvöfaldur bílskúr.
EIGNIN SELST Í ÞVÍ ÁSTANDI SEM HÚN ER Í OG MUN SELJANDI EKKI GERA NEINAR ENDURBÆTUR Á HENNI FYRIR SÖLU.
ÞVÍ ER SKORAÐ Á VÆNTANLEGA KAUPENDUR AÐ KYNNA SÉR VEL ÁSTAND EIGNARINNAR FYRIR KAUPTILBOÐSGERÐ
OG LEITA SÉR SÉRFRÆÐIAÐSTOÐAR UM NÁNARI SKOÐUN UM ÁSTAND EIGNAR.Nánari lýsing: Anddyri með dúk á gólfi, fataskápur yfir heilan vegg.
Gestasalerni er innaf anddyri, upphengt salerni og handlaug, gluggi, dúkur á gólfi.
Hol/gangur er innan við anddyri, þaðan er opið inní stofu/borðstofu, teppi á gólfi.
Stofa og borðstofa, teppi á gólfi, frá stofu er útgengt út á hellulagða verönd til suðurs.
Eldhús, korkur á gólfi, borðkrókur með upphengdu/áföstu borði, eldavél, vifta, gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu.
Herbergi I, hjónaherbergi, dúkur á gólfi, áttfaldur
fataskápur.
Herbergi II, dúkur á gólfi, þrefaldur fataskápur.
Herbergi III, dúkur á gólfi, tvöfaldur fataskápur.
Herbergi IV, dúkur á gólfi.
Baðherbergi, dúklagt í hólf og gólf, vaskinnrétting, salerni, sturta og baðkar, gluggi.
Þvottahús er innaf eldhúsi, málað gólf, innrétting með stálvask í borði, gert er ráð fyrir einni vél, gluggi. Úgengt er frá þvottahúsi út á hellulagða verönd aftan við bílskúr.
Innangengt er í búr/geymslu frá þvottahúsi.
Búr/geymsla er innaf þvottahúsi, málað gólf, hillur og gluggi. Lúga er uppá loft í búri/geymslu.
Allar innréttingar eru upprunalegar og voru sérsmíðaðar.
Inntaksrými er staðsett í skúr á milli íbúðarhúss og bílskúrs (aftan við bílskúr), hellulagt gólf.
Bílskúr með máluðu gólfi, gönguhurð er á aftanverðum bílskúr. Tvær bílskúrshurðar, önnur þeirra er með mótor, fjórfaldur skápur. Loft í bílskúr er ullað og plastað.
Húsið er timburhús á einni hæð klætt að utan með standandi klæðningu, járn á þaki.
Bílskúr er tvöfaldur klæddur að utan, járn á þaki. Möl er í bílaplani framan við bílskúr, pláss fyrir þrjár bifreiðar.
Hellulögð stétt liggur frá bílaplani meðfram húsi að aðalinngangi og á milli bílskúrs og íbúðarhúss. Hellulögð verönd er við húsið til suðurs, lóð er gróin.
Lóðin er 805.0 m² leigulóð frá Hveragerðisbæ.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 220-9969.Stærð: Íbúð 120.0 m². Bílskúr 49.0 m² Samtals 169.0 m².
Brunabótamat: 69.050.000 kr.
Fasteignamat: 75.750.000 kr
Byggingarár: Íbúð 1966. Bílskúr 1968.
Byggingarefni: Timbur.