Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Sjávarborg 4B, 190 Vogar.
Um er að ræða fallegt 91,4 fm raðhús með þremur svefnherbergjum.
Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, stofu, borðstofu, eldhús og verönd.
Eignin getur verið laus við kaupsamning.
Nánari lýsingForstofa hefur flísar á gólfi og góðan fataskáp.
Eldhús hefur parket á gólfi, snyrtilega innréttingu með miklu skápaplássi, bakarofni í vinnuhæð, innbyggður ísskápur.
Stofa og borðstofa eru í opnu björtu rými með parket á gólfi, aukin lofthæð, þar er útgengi út á verönd.
Svefnherbergin eru þrjú talsins, rúmgóð með parket á gólfi. Svefnloft er í einu herberginu.
Baðherbergið er físalagt í hólf og gólf, góð innrétting, salerni, sturta og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Bílaplan er malbikað
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, Reykjanesbæ, og í síma 420-4050 eða á netfangið: es@es.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4%
ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr.
3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar
á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, skv. gjaldskrá.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignamiðlun Suðurnesja bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.