Laugardagur 27. júní
Fasteignaleitin
Opið hús:01. júlí kl 17:30-18:15
Skráð 27. júní 2026

Rauðalækur 31

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
87.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
75.900.000 kr.
Fermetraverð
868.421 kr./m2
Fasteignamat
68.650.000 kr.
Brunabótamat
42.850.000 kr.
Mynd af Sölvi Þór Sævarsson
Sölvi Þór Sævarsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2016221
Landnúmer
103951
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
00
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar raflagnir
Frárennslislagnir
Upphaflegar búið að yfirfara og fóðra skolplagnir
Gluggar / Gler
Gluggar endurnýjaðir fyrir 10-12 árum
Þak
upphaflegt, búið að skipta um þakjárn og pappa.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd í suðvestur út af stofu
Upphitun
Ofnalagnir
Inngangur
Sérinngangur
Valhöll og Sölvi Þ. Sævarsson lgfs, kynna í einkasölu: Glæsileg, björt og vel skipulogð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi í rólegum botnlanga við Rauðalæk 31, í 105 Rvk.
Húsið hefur verið töluvert endurnýjað að utan á síðustu árum. Gluggar og þakjárn hefur verið endurnýjað. Skolplagnir og drenlagnir yfirfarnar. Einnig er nýlegt baðherbergi og parket á íbúðinni.
 
Eignin er í heild skráð 87,4 m²  skv. Hms. Einnig er geymsla í sameign og anddyri sem ekki eru inni í fm tölu íbúðar.


* Gluggar og þakjárn endurnýjað 2008.
* Hús endurmúrað og málað að utan 2021.
* Endurnýjað baðherbergi frá 2020.
* Nýlegt harðparket á íbúð frá 2020.
* Gott skipulag og sérinngangur.


Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og þvottahús þar innaf, rúmgott hjónaherbergi og barnaherbergi ásamt stofu og borðstofu þar sem hurð er út á lóð í suður. Geymsla í sameign.
 
Allar nánari uppl.  veitir Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali í s. 618-0064 / solvi@valholl.is 

Nánari lýsing:
Anddyri – Flísar á gólfi, fatahengi og hurð inn í sameign þar sem er geymsla.
Hol – Ágætlega rúmggott miðrými íbúðarinnar sem leiðir mann í aðrar vistaverur íbúðarinnar með harðparketi á gólfi. Á móts við hjónaherbergi í holi er hvítur fataskápur sem nær að lofti.
Eldhús – Rúmgott eldhús með innréttingu á tvær hliðar og borðkrók í enda eldhúss við glugga. Innrétting er hvít með plöstuðum hurðum að hluta. Harðparket á gólfi.
Þvottahús – Inn af eldhúsi er ágætlega rúmgott þvottahús með innréttingu, góðu skápaplássi og vinyldúk á gólfi. Gluggi á þvottahúsi.
Hjónaherbergi – Rúmgott hjónaherbergi, nýlegir fataskápar með rennihurðum, harðparket á gólfi.
Baðherbergi – Baðherbergið var allt endurnýjað árið 2020, ljósar vandaðar marmaraflísar á veggjum sem ná að lofti, Gófflísar eru vandaðar í ljósgrábrúnum lit, innfellt upphengt salerni á vegg, baðkar með sturtuaðstöðu og glerþili við baðkar. Hvít sérsmíðuð innréttting með Corian borðplötu/vask úr acrylefni frá Orgus. Speglaskápur ofan við innréttingu með lýsingu í hurðum. Handklæðaofn og opnanlegur gluggi á baðherbergi.
Stofa/borðstofa – Rúmgóð stofa og borðstofa í sameiginlegu rými með hurð út á lóð og garð í suður. Harðparket á gólfi.
Barnaherbergi – Gengið er í ágætlega rúmgott barnaherbergi á hægri hönd þegar komið er inn í íbúð, harðparket á gólfi.
 
Innréttingar og gólfefni: Gólfefni, harðparket er nýlegt frá 2020. Hurðar er eldri tekkhurðar sem gefa íbúðinni skemmtilegt yfirbragð. Góðir nýlegir fataskápar í hjónaherbergi og einnig í holi íbúðarinnar.

Hússjóður: Greitt er 6.827.- kr í hússjóð á mánuði. Almennur rekstur, sameiginlegur hiti og þrif í sameign er innaflið í hússjóðsgjöldum. Engar væntanlegar framkvæmdir hjá húsfélagi 
Næsta umhverfi: Stutt í skóla og leikskóla og flest alla þjónustu. Stutt í sundlaug og líkamsrækt World Class í göngufæri.

Upplýsingar frá eigendum með framkvæmdir síðustu ára. Rauðalækur 31

- Skipt um þakjárn og glugga 2008
- Skólplagnir  fóðraðar og settur brunnur 2015
- Hús málað og múrviðgerð 2021
- Nýtt baðherbergi 2020
- Lagnir í gólfi kannaðar 2020. Skipt um lagnir á baði. 
- Bollaslípun á gólfplötu á allri íbúð (nema þvottahúsi) 2020.
- Nýtt parket lagt á alla íbúð (nema þvottahús) 2020.
- Allt baðherbergið tekið í gegn 2020. Sérsmíðuð innrétting. Sérsmíðuð vaskplata frá Corian úr Orgus.
- Flestir ofnar hafa verið endurnýjaðir, ártal ekki vitað.

Nánari upplýsingar veitir:
Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali. í síma 618-0064 / solvi@valholl.is 
 – eða skrifstofa / s.588-4477 / valholl@valholl.is

 
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 74.900 kr.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.


 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
18/10/201936.600.000 kr.45.500.000 kr.87.4 m2520.594 kr.
16/08/201936.600.000 kr.42.000.000 kr.87.4 m2480.549 kr.Nei
10/07/201319.500.000 kr.27.000.000 kr.87.4 m2308.924 kr.
13/02/200716.550.000 kr.19.800.000 kr.87.4 m2226.544 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (36)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sjávargrund 15b
Bílskúr
Skoða eignina Sjávargrund 15b
Sjávargrund 15b
210 Garðabær
197.7 m2
Fjölbýlishús
714
657 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Drómundarvogur 2 (Þakíbúð)
Bílastæði
Drómundarvogur 2 (Þakíbúð)
104 Reykjavík
145.2 m2
Fjölbýlishús
422
1032 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Tjarnarlundur 17b
Tjarnarlundur 17b
600 Akureyri
83.2 m2
Fjölbýlishús
312
636 þ.kr./m2
52.900.000 kr.
Skoða eignina Hraunbraut 17
Skoða eignina Hraunbraut 17
Hraunbraut 17
805 Selfoss
98.6 m2
Raðhús
413
648 þ.kr./m2
63.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin