OPIÐ HÚS milli kl. 17,00 - 18.00 þriðjudaginn 17. mars n.k. íbúð 0102 Seljabraut 38, Rvk. VERIÐ VELKOMIN !
Björt 101,2 fm fjögurra herbergja enda íbúð á 1.hæð með garðskála og 4,7 fm geymslu auk 33,8 fm íbúðarrými á jarðhæð sem mögulega er hægt að breyta í litla studíoíbúð (sér inngangur úr sameign), íbúðinni fylgir bílastæði í bílageymslu. Samtals er birt stærð íbúðarrýmis 139,7 fm auk bílastæðis í bílageymslu.
Íbúðin er staðsett í fjölskylduvænu hverfi í göngufæri í matvöruverslun, leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. Íbúðin skiptist í forstofurými, eldhús, lítið þvottaherbergi, þrjú herbergi þ.a. eitt herbergi opið án hurðar, baðherbergi, stofu og garðskála. Á jarðhæð er 33,9 fm íbúðarrými (tvö herbergi) með góðri lofthæð, stórum gluggum og sérinngangi úr sameign (mögulega hægt að breyta í 33,9 fm studíoíbúð). Einnig er geymsla íbúðarinnar á jarðhæð auk sameiginlegrar vagna- og hjólageymslu. Innangengt er úr sameign í bílageymslu og tilheyrir íbúðinni bílastæði, merkt 11-0101.
Nánari lýsing: Komið er inn í forstofurými með gólfflísum og fataskápum. Við forstofurými er lítið þvottaherbergi með gólfflísum og skolvask. Eldhús er með gólfflísum, hvítri eldhúsinnréttingu, veggflísum, innfelldri lýsingu í eldhúsinnréttingu, keramik helluborði, viftu og veggofni. Öll herbergin eru með skápum og gólfflísum, eitt herbergið er opið án hurðar. Flísalagt baðherbergi er með glugga, baðkari, baðinnréttingu og vegghengdu salerni. Gólfhiti er í baðherbergi, hjónaherbergi og í eldhúsi. Á jarðhæð er 33,9 fm parketlagt rými, merkt geymsla. Rýmið er með sérinngangi úr sameign, góðri lofthæð og þremur góðum gluggum, (mögulega er hægt að innrétta rýmið sem tvö herbergi eða sem litla stúdio íbúð). Á jarðhæð er einnig geymsla íbúðarinnar, sameiginleg hjóla- og vagnageymsla og er innangengt úr sameign inn í bílageymslu þar sem er eitt bílastæði tilheyrir íbúðinni. Einnig er í bílageymslu sameiginlegt rými fyrir bílaþvott.
Nánari upplýsingar veitir Geir Sigurðsson löggiltur fasteignasali í síma 655-9000, netfang: geir@husasalan.is.