Kaupstaður fasteignasala kynnir í einkasölu HJALLAHLÍÐ 21, 270 Mosfellsbæ.
Fjögurra herbergja neðri hæð í tvíbýlishúsi með bílskúr innst í rólegum botnlanga. Smellið hér fyrir staðsetningu.
SMELLTU HÉR FYRIR SÖLUYFIRLIT, TILBOÐSGERÐ OG ÖNNUR SKJÖL.
Húsið er steypt, byggt árið 2000. Eignin skiptist í íbúð 116.5 m² og bílskúr 24.5 m² samtals 141.0 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: anddyri, gangur, þrjú herbergi, stofa/borðstofa, eldhús, geymsla, þvottahús og baðherbergi.
Nánari lýsing:
Anddyri, með flísum á gólfi. Frá anddyri er innangengt í geymslu (forstofu) og þaðan inn í þvottahús.
Geymsla (forstofa), með fataskápum, kommóðu (fylgir með) og flísum á gólfi.
Þvottahús, með hvítri háglans innréttingu með skápum og vinnuborð með stálvaski, pláss fyrir tvær vélar, gluggi og límflísar á gólfi.
Eldhús, hvít innrétting með fulningum, helluborð og vifta, ofn í vinnuhæð, hvítur keramik vaskur og uppþvottavél. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu. Ísskápur og uppþvottavél fylgja.
Stofa og borðstofa er saman í einu rými með parket á gólfum og útsýni yfir Esjuna. Útgengt út á rúmgóða timburverönd sem snýr í suðvestur með skjólveggjum.
Herbergi I, hjónaherbergi, þrefaldur fataskápur.
Herbergi II og III með parket á gólfi.
Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, hiti í gólfi, hvít háglans vaskinnrétting og hár skápur, upphengt salerni, hornbaðkar, handklæðaofn og gluggi.
Bílskúr, rafmagnshurð, þriggja fasa rafmagn, niðurfall, steypt gólf. Innst í bílskúr er afstúkuð geymsla og milliloft. Plan framan við skúrinn er upphitað með plássi fyrir eina bifreið.
Gólfefni: flæðandi parket er á alrými, eldhúsi, gangi og herbergjum. Flísar á forstofu, baðherbergi, geymslu og þvottahúsi. Steypt gólf í bílskúr og geymslu þar inn af.
Hjallahlíð 21 er steinsteypt tveggja hæða hús með risþaki, timburgluggar og hurðar. Inngangur í húsið er sameiginlegur og nýttur sem hjóla- og vagnageymsla, inngangurinn er með glerþaki, álgluggum og álhurð. Hellulagt bílaplan er framan við húsið, á planinu er pláss fyrir tvær bifreiðar. Timburverönd með skjólveggjum er framan við húsið í eigu neðri hæðar.
Garður er í sameign með blómabeðum og trjám og hefur verið vel viðhaldið.
Staðsetning: Stutt er í alla helstu þjónustu, leik- og grunnskóla, íþróttasvæði, sundlaug og verslun. Róleg staðsetning í grónu hverfi í Mosfellsbæ.
Lóð, 652,6 m² leigulóð í eigu Mosfellsbæjar, lóðarleigusamningur til 75 ára frá 1. apríl 1999, skjal nr. 411-B-012652/1999.
Helstu endurbætur:
Þvottahús tekið í gegn 2024
Baðherbergi, ný innrétting 2025
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kaupstaður fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Upplýsingar sem koma fram í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða er umsýslugjald 129.900 m.vsk.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu: www.kaupstadur.is | Borgartún 29, 105 Reykjavík | Kaupstaður
Opið alla virka daga milli kl. 10:00-15:00. Svarað er í síma milli kl. 09:00-16:00.
Nánari upplýsingar í síma 454-0000 eða kaupstadur@kaupstadur.is
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
245 | 255,2 | 105 | ||
260 | 144,5 | 76,9 | ||
221 | 112,2 | 99,9 | ||
300 | 183,6 | 114,9 | ||
108 | 97,8 | 94,9 | ||
201 | 155,9 | 114,9 |